11.1.2012 | 20:58
Heilög Jóhanna laug að þingi og þjóð.
Fyrir nokkrum misserum birtist frétt í Morgunblaðinu þess efnis, að formaður bankastjórnar Seðlabankans, Lára V. Júlíusdóttir hafi flutt á fundi stjórnar bankans, tillögu frá forsætisráðherra, Jóhönnu Sigurðardóttur, um 300 þús kr. launahækkun seðlabankastjóra, Má Guðmundssyni til handa. Enda hafi sú launahækkun eða launaleiðrétting þessi verið umsamin við ráðningu Más við bankann.
Auðvitað hafnaði Johanna þvi alfarið, að samið hefði verið við Má með þessum hætti og fréttir af þessum samningi, væri bara hugarburður ritstjóra Morgunblaðsins, Davíðs Oddssonar. Frétt blaðsins væri bara skrifuð af heift og hefndarþorsta Davíðs, sem að hún hafði, einhverjum mánuðum áður hrakið úr bankanum.
Á Alþingi var utandagskrárumræða um þessan samning. Jóhanna hélt þar áfram ósannsögli sínu og árásum á ritstjóra Morgunblaðsins og helvítis íhaldið, sem að gerði allt það sem það gæti til þess að bregða fyrir hana fæti.
Umræðunni í þinginu, lauk svo með því að Þórunn Sveinbjarnardóttir, núverandi siðfræðistudent við HÍ en þáverandi formaður þingflokks Samfylkingarinnar sagði, að Lára V. Júlíusdóttir, gæti ekki gert Jóhönnu og Samfylkingunni það, að halda því til streitu að tillagan um laun Más, hafi komið frá forsætisráðherra, vegna samings sem ráðherrann gerði við Má er hann var ráðinn til bankans.
Úr því að Már fer með þetta fyrir dóm, þá ætti það að vera hverjum manni ljóst að samningurinn sem Jóhanna afneitaði og laug um að væri ekki til, er til. Enda hæpið að Már Guðmundsson færi með malið þessa leið væri samingurinn, bara hugarburður Davíðs Oddssonar.
Már í mál við Seðlabankann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
Bloggvinir
- axelaxelsson
- reykur
- baldher
- benediktae
- bjarnimax
- bookiceland
- dansige
- gisliivars
- fosterinn
- gauz
- gp
- gmaria
- noldrarinn
- hallarut
- halldorjonsson
- heimirhilmars
- hlf
- fun
- johanneliasson
- bassinn
- jonvalurjensson
- kristinnp
- krist
- kristjan9
- wonderwoman
- ludvikjuliusson
- magnusthor
- pallvil
- rannsoknarskyrslan
- rosaadalsteinsdottir
- heidarbaer
- ziggi
- saemi7
- ubk
- thjodarheidur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 1
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sök bítur sekan. Það er allt að hrynja í kringum Jógrímu og rakkinn hennar er flúinn úr greninu ofan í skafl, sem mun óhjákvæmilega bráðna af honum. með hækkandi sól. Þá mun á að líta! Hún er sjálf að steingerast, en þykist dyljast í síðustu hríðarabyljum vetrarins. Með hækkandi sól mun aldeilis gefa á að líta!
Almenningur (IP-tala skráð) 11.1.2012 kl. 22:41
Hún reiðir sig á að komast klakklaust í skjólið,það merkir að depurðin sem þau framkalla,veiki athyglisgáfu mótmælenda,sem eru vakin og sofin
Helga Kristjánsdóttir, 12.1.2012 kl. 03:03
Spurning hvort brestir verði núna í samstarfi þeirra við Má–––og honum jafnvel skóflað út og fenginn einhver nógu Samfylkingarvankaður í staðinn, t.d. Þórólfur á Melum eða Icesave-Gylfi. Hneyksli í kringum þessi réttarhöld mun ekki hrífa á steingerða Jóhönnu, nema gemlingar hennar í Alþingi gangi undan henni felmtri slegnir. Á meðan heldur hún trúlega áfram þjösnastefnu sinni og annarra á lúxuselliheimili í Brussel.
Jón Valur Jensson, 12.1.2012 kl. 03:17
... og heilagleikinn fokinn út í veður og vind.
En tímasetning þessarar málshöfðunar Más er trúlega til marks um takmarkaða trú hans á framhaldslíf þessarar verstu ríkisstjórnar lýðveldissögunnar úr þessu. Hann verður vitaskuld ekki ráðinn áfram og þarf því að reyna að höfða sitt mál, meðan hann enn situr í stólnum.
Jón Valur Jensson, 12.1.2012 kl. 03:22
Þarna gekk tæknin í lið með lyginni. En gáfuðustu menn þjóðarinnar, verjast með alþýðu Íslands,svo merkilegt sem það er,koma þeir frá ystu pólum stjórnmálanna og sameinast í baráttunni. Móti því öfluga liði, er Samfylkingunni allar bjargir bannaðar. EKKERT ESB.
Helga Kristjánsdóttir, 12.1.2012 kl. 03:23
Það eina sem Slowhanna kemst klakklaust á, nú eftir að Seingrímur er skriðinn í holu, er stofufangelsi..... enda mun það hlutskipti hennar til æviloka þar sem að hún getur ekki sýnt sig (m.v. þingsetningarleikritið) nema innan víggirðingar og innan lífvarða.
Óskar Guðmundsson, 13.1.2012 kl. 01:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.