3.11.2011 | 21:44
Er það virkilega satt???
,,Búið er að skipa nýja stjórn Bankasýslu ríkisins. Stjórnarmenn eru Guðrún Ragnarsdóttir formaður, Jón Sigurðsson varaformaður og Hulda Dóra Styrmisdóttir. Egill Tryggvason er varamaður."
Ég get nú ekki sagt að ég kannist við þetta fólk, nema þó hugsanlega með einni undantekningu, Jón Sigurðsson varaformaður.
Það væri hins vegar beinlínis galið, sé það svo að ég kannist við þann Jón Sigurðsson sem átt er við.
Sé þetta sá Jón er mig grunar, þá er þetta Jón Sigurðsson, fyrrv. iðnaðar og viðskiptaráðherra fyrir Alþýðuflokkinn, seint á síðustu öld. Að loknum stjornmálaferli varð Jón svo seðlabankastjóri og síðar einn af bankastjórum, Norræna fjárfestingarbankans.
Sík ferilsskrá, gæti þó þótt eftirsóknarverð, fyrir varaformann stjórnar Bankasýslu ríkisins, ef ekki væri til viðbót á henni, er hljómar ekki nógu vel.
Síðustu misserin fyrir hrun þá var Jón stjórnarformaður FME og gerðist sem slíkur ,,Icesave-stúlka" Landsbankans í Hollandi, vorið 2008. Maður í sömu stöðu og Jón, hefði nú vart tekið slíkt að sér, nema kynna sér stöðu Landsbankans og afkomuhorfur hans næstu misserin.
Því varla færi stjórnarformaður Fjármálaeftirlitsins, að tala fyrir því, að fólk leggði peninga inn í banka, er hann teldi vera kominn að fótum fram.
Auk modelstarfa fyrir Landsbankann og formennsku í stjórn FME, þá var Jón einnig, varaformaður stórnar Seðlabankans og af þeim sökum, örugglega þátttakandi í flestum þeim ákvörðunum er þar voru teknar fyrir hrun og vikurnar eftir hrun.
Ég satt best að sega, vona að ekki sé um sama Jón að ræða og skrifað er um, hér að ofan. En sé þetta sá sami, þá má spyrja stjórnarmeirihlutann á þingi, hvort hann telji að maður með slíka fortíð, sé til þess fallinn að auka á svokallaðan ,,trúverðugleika" Bankasýslu ríkisins, með setu sinni í varaformannssæti stjórnar Bankasýslunnar?
Ný stjórn Bankasýslu ríkisins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
Bloggvinir
- axelaxelsson
- reykur
- baldher
- benediktae
- bjarnimax
- bookiceland
- dansige
- gisliivars
- fosterinn
- gauz
- gp
- gmaria
- noldrarinn
- hallarut
- halldorjonsson
- heimirhilmars
- hlf
- fun
- johanneliasson
- bassinn
- jonvalurjensson
- kristinnp
- krist
- kristjan9
- wonderwoman
- ludvikjuliusson
- magnusthor
- pallvil
- rannsoknarskyrslan
- rosaadalsteinsdottir
- heidarbaer
- ziggi
- saemi7
- ubk
- thjodarheidur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Líklega var Guðrún þessi Ragnarsdóttir einu sinni gæðastjóri Íslandabanka gamla.
Almenningur (IP-tala skráð) 3.11.2011 kl. 22:05
Kjánum var hent út og fáráðlingar ráðnir í staðinn en N.B. þó fáráðlingar með "rétt" flokkskírteini
Óskar Guðmundsson (IP-tala skráð) 4.11.2011 kl. 11:08
ekki gleyma, hann var varformaður stjórnar Seðlabankans .... gagnrýið þið svo Pál
siguróli kristjánsson (IP-tala skráð) 4.11.2011 kl. 13:46
Þetta er reyndar ekki sá Jón. En Guðrún þessi var forstöðumaður hjá Íslandsbanka II og nú framkv.stj. LÍN. Það er víst ekki fullt starf
Abraham (IP-tala skráð) 4.11.2011 kl. 15:00
Egill Tryggvason var lögfræðingur hjá fjármálráðuneytinu og starfaði meðal annars fyrir Steingrím, Jón Sigurðsson er maður sem ætti að rannsaka, Það vita það ekki margir en Seðlabankinn lánaði 800 víkjandi lán til stóru bankanna og þau eru ólögleg þar sem að stóru bankarnir voru og eru fjárfestingarbankar Tier 1 og mega ekki fá víkjandi lán en þeir geta gefið út víkjandi skuldabréf til að byggja upp eigið fé þess í stað. Jón veit að ef að ríkið aðstoðar ekki kröfuhafa þá fær Seðlabankinn ekki kröfur sínar viðurkenndar. Kartöflupoki ætti frekar að sitja í hans sæti í Bankasýslunni.
valli (IP-tala skráð) 6.11.2011 kl. 19:41
800 milljarða (átta hundruð þúsund milljónir)
valli (IP-tala skráð) 6.11.2011 kl. 19:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.