Því ber auðvitað að fagna, að heimtur í þrotabú Landsbankans virðast ganga betur en bjartsýnustu menn þorðu að vona. Bretar og Hollendingar hljóta einnig að fylgjast spenntir með enda hlýtur það að svíða sárt að neyðast til þess að svíða útúr ,,vinaþjóð" sinni norðri þessa ríkisábyrgð á heimtur úr þrotabúinu.
Eins hlýtur ESA að fylgjast með fréttum héðan og hugsa sinn gang varðandi áminningarbréfið og jafnvel sjá að það var bölvuð fljótfærni að hóta smáríkinu í norðri málsókn. Enda er ekki annað að sjá að eignir fjármálafyrirtækisins, er fór á hausinn og skildi sparifjáreigendur í UK og NL á brókinni, dugi fyrir innistæðutryggingarupphæðinni og vel það.
ESA fer því varla að eyða dýrmætum tíma sínum í svona ,,smámál", sem leysist svona fallega ,,af sjálfu sér". Enda hljóta að vera næg önnur verkefni hjá ESA, sem betra væri að eyða kröftum í.
Það var reyndar orðið ljóst að vegna neyðarlaganna, þá fengju UK og NL 1150- 1175 milljarða, þó svo að þjóðin segði nei. Þessar fréttir renna styrkari stoðum undir það og hækka frekar upphæðina, heldur en hitt.
Bresk og Hollensk stjórnvöld hljóta nú að naga á sér neglurnar og vona að samningurinn verði felldur, svo þeim gefist tækifæri til að bæta fyrir mistök samningamefnda sinna. En samninganefdirnar höfnuðu 47 milljarða eingreiðslu, ásamt heimtum úr þrotabúinu skv. neyðarlögunum, gegn afnámi ríkisábyrgðar.
Samningurinn sem þessar þjóðir þröngvuðu upp á ,,vinaþjóð" sína í norðri, var víst ekki betri en það að þær tapa 15 milljörðum í það minnsta. Nei-ið gæfi þeim því tækifæri til þess að taka þessu kostaboði íslensku samningarnefndarinnar og græða smá pening að auki.
En þetta er víst allt saman háð því að heimtuhorfur úr þrotabúinu, séu ekki nefndar með orðunum ,,sennilega" og ,,hugsanlega" á undan. Heldur verði orðið ,,örugglega" alls ráðandi. Auk þess auðvitað, að neyðarlögunum, sem eru í raun forsenda greiðslu krafnanna en ekki samningurinn, verði hnekkt.
Nálægt þeirri áhættu vilja hvorki bresk né hollensk stjórnvöld koma nálægt og krefjast því þess að ,,vinaríkið" í norðri beri alla áhættuna.
Icesave gæti horfið með sölu á Iceland | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
Bloggvinir
- axelaxelsson
- reykur
- baldher
- benediktae
- bjarnimax
- bookiceland
- dansige
- gisliivars
- fosterinn
- gauz
- gp
- gmaria
- noldrarinn
- hallarut
- halldorjonsson
- heimirhilmars
- hlf
- fun
- johanneliasson
- bassinn
- jonvalurjensson
- kristinnp
- krist
- kristjan9
- wonderwoman
- ludvikjuliusson
- magnusthor
- pallvil
- rannsoknarskyrslan
- rosaadalsteinsdottir
- heidarbaer
- ziggi
- saemi7
- ubk
- thjodarheidur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 1804
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Af mbl.is
Viðskipti
- Dana tekur yfir markaðsmál Lauf Cycles
- Kerecis-hjón fjárfesta í leiguflugi
- Vextir lækki um 175-200 punkta
- Dr. Bjarni Pálsson til Vinds og jarðvarma
- Icelandair færir eldsneytið til Vitol
- Arkitektar ósáttir við orðalag forstjóra FSRE
- Ný ríkisstjórn þurfi að hafa hraðar hendur
- Indó lækkar vexti
- Hlutverk Kviku að sýna frumkvæði á bankamarkaði
- Þjóðverjar taka við rekstri Fríhafnarinnar
Athugasemdir
Jamm, þú negldir þetta!
Haraldur Rafn Ingvason, 7.4.2011 kl. 19:06
Það er lika stórmerkilegt hvað innheimtuhlutföllin hafa batnað mikið og verslunarkeðjan Iceland hækkar um milljónir punda dag hvern, samkvæmt nýjustu fréttum og "líklega" nánast "sennilegt" að hún seljist á toppverði alveg næstu daga.
Vonandi haldast allar þessar góðu horfur lengur en fram að helgi.
Axel Jóhann Axelsson, 7.4.2011 kl. 19:15
Einmitt það Axel Því þeir sem fylgja "já"-inu eru þeir einu sem nota orðin "sennilega" og "líklega"?
Þetta er smámál og það skiptir engu hvort við segjum nei eða já.
Páll (IP-tala skráð) 7.4.2011 kl. 23:22
Jebb, þökk sé verslunarkeðjunni Icesave og útrásarvíkingunum sem sleppa með skrekkinn í boði sögueyjunnar og barna hennar, þá tengist orðið "Iceland" í huga hins venjulega Breta, allra nema eins og eins bókmenntaáhugamanns, söguspekúlants eða ljósmyndar helst innkaupum á klósettpappír. Þetta veit ég afþví ég bjó þarna í mörg ár. Ég veit líka að sú ímynd mun styrkjast ef við höldum áfram að "take the shit" og segjum nei.
Ísland (IP-tala skráð) 9.4.2011 kl. 13:38
Alvarleg mistök hér!!! Ætlaði að segja ef við segjum Já og höldum áfram að "take the shit"
Ísland (IP-tala skráð) 9.4.2011 kl. 13:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.