4.12.2010 | 18:58
Kattaþvottur og sögufölsun Umbótanefndar Samfó.
Þegar Samfylkingin settist í stjórn með Sjálfstæðisflokknum vorið 2007, þá voru tengsl flokksins við marga þeirra útrásarvíkinga, er mest komu við sögu í hruninu, ca. fjögurra ára gömul, eða síðan fyrir kosningar 2003, eins og Borgarnesræða Ingibjargar, bendir svo greinilega á.
Mánuðina þar á undan hafði ýmislegt gengið á. Eftir þriggja manna 300 milljóna tal í London, hófst umfangsmikil skattrannsókn á fyrirtækjum Bónusfeðga og á fyrirtækjum Jóns Ólafssonar, kenndan við Skífuna. Það var því engin tilviljun að nöfn þessara aðila hafi komið fram á áberandi hátt í Borgarnesræðu Ingibjargar, enda þurftu þessar viðskiptablokkir, pólitískan bakhjarl á þeim tíma. Þeim var þess vegna tekið opnum örmum í Samfylkingunni, enda mikil von til þess að flokkurinn gæti með myndarlegum fjárstuðningi þeirra, keypt sig til valda. Afrakstur þessa fóstbræðralags, varð meðal annars barátta Samfylkingar gegn fjölmiðlafrumvarpinu auk þess sem þingmenn flokksins gagnrýndu oftar en einu sinni rannsóknina á Baugsmálinu í ræðum og í fyrirspurnum í þinginu.
Samfylkingin tók einnig Kaupþings-klikunni opnum örmum, eftir að þáverandi forsætisráðherra hafði blöskrað launamál stjórnenda bankans. Á þeirri stundu varð stjórnendum Kaupþings það ljóst, að þyrftu þeir ,,pólitískt skjól", þá væri það ekki í Sjálfstæðisflokknu. Fór því svo að Samfylkingin tók Kaupþingsgenginu einnig opnum örmum.
Það er því í rauninni móðgun við þjóðina, að Samfylkingin skuli láta sér detta það í hug, að bjóða þjóðinni upp á þá söguskýringu að flokkurinn hafi verið haldin ,,Blair-isma" á háu stigi, eða ,,of" hlýðinn samstarfsflokki sínum í ríkisstjórn í aðdraganda hrunsins. Andvaraleysi flokksins í hruninu var keypt af stjórnendum þeirra banka er mestum skaða ollu í hruninu, nokkrum misserum, áður en Samfylkingin settist í ríkisstjórn þá, er var við völd í hruninu.
Samfylkingin biðst afsökunar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
Bloggvinir
- axelaxelsson
- reykur
- baldher
- benediktae
- bjarnimax
- bookiceland
- dansige
- gisliivars
- fosterinn
- gauz
- gp
- gmaria
- noldrarinn
- hallarut
- halldorjonsson
- heimirhilmars
- hlf
- fun
- johanneliasson
- bassinn
- jonvalurjensson
- kristinnp
- krist
- kristjan9
- wonderwoman
- ludvikjuliusson
- magnusthor
- pallvil
- rannsoknarskyrslan
- rosaadalsteinsdottir
- heidarbaer
- ziggi
- saemi7
- ubk
- thjodarheidur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Takk....loksins að maður sé einhvern sem man nokkur ár aftur í tímann
Doddi (IP-tala skráð) 4.12.2010 kl. 19:19
Þetta er kjarni málsins um þátt Samfylkingarinnar, og það er ekki beðizt neinnar afsökunar á honum. Ríkisútgjöld þöndust úr í bólunni og það er heldur engin afsökunarbeiðni þar að lútandi, eða man einhver eftir því að Samfylking (eða VG ef út í það er farið) hafi varað við of mikilli útþenslu ríkisútgjalda?
Skúli Víkingsson, 4.12.2010 kl. 22:03
Þessi umbótanefnd virðist ekki telja að Samfylkingin hafi verið áhrifavald í íslenskum stjórnmálum fyrir ríkisstjórn Geirs Haarde.
Við þetta má bæta að það var Samfylkingin sem var í bílstjórasætinu þegar Ísland var keyrt með offorsi í evrópska efnahagssvæðið og var reglugerðum og reglugerðaleysi samningsins bunað í gegn á ljóshraða. Fáir vissu landið var varnargirðingarlaust fyrir fjármálaglæpum. Siðleysingjarnir voru aftur á móti fljótir á bragðið eins og allir vita í dag.
Sveinn Úlfarsson (IP-tala skráð) 4.12.2010 kl. 22:38
Þeim fer fjölgandi sem finnst vera kominn tími á að gefa stjórnmálaflokkunum endurhæfingarfrí frá ráðherrastólunum. Þetta er leiðin til þess: http://utanthingsstjorn.is/
Rakel Sigurgeirsdóttir, 5.12.2010 kl. 05:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.