14.9.2010 | 20:36
Síðasti séns fyrir Alþingi að taka ábyrga afstöðu, án hungurs í pólitískt uppgjör í dómsal?
Líklega verður gert hlé á umræðum á þingi, seinni partinn á morgun. Það mun vera gert svo nefndin geti ráðið ráðum sínum varðandi Landsdóminn t.d. Umræður um Landsdóminn hefjast svo á föstudaginn. Með þessu fyrirkomulagi þá fær nefndin tækifæri til þess að draga tillögunar um Landsdóm til baka of/eða koma með tillögu um Landsdóm, sem tæki þá á ábyrgð allra þeirra sem að hugsanlega gætu átt þar heima líka.
Ég rakst á umræðu um Landsdóminn á Facebook og hnaut um ummæli Benedikts Sigurðssonar, samfylkingarmanns frá Akureyri:
- "Ég hef fulla staðfestingu á því að mjög margir úr hópi almennra flokksmanna í SF eru algerlega rasandi yfir afar illa grundaðri afstöðu Magnúsar Orra Schram og Oddnýjar G. Harðardóttur - og því hvernig "spuni Össurar" í óstaðfestum vitnisburði fyrir Rannsóknarnefnd Alþingis - er bakgrunnur fyrir því að Ingibjörgu Sólrúnu er "fórnað" - en Björgvin G "dreginn í land" á þeim forsendum að hann sé bæði flón og afglapi . . .
Fyrir þá sem ekki muna að Ingbjörg SÓLRÚN var í USA Hrundagana og að mestu leyti utan þjónustusvæðis vikum saman - fram í nóvember 2008 - en Össur stýrði verkum á vettvangi í samráði við Geir og Davíð með Björgvin G sem "blaðafulltrúa" . . þar sem ´Jón Þór Sturluson og Jón Sigurðsson voru sérlegir trúnaðarmenn viðskiptaráðherrans allt árið 2008 og í gegn um Hrunið og til loka stjórnarsamstarfs SF og Sjálfstæðisflokksins . . . - og enn er hlaðið undir þessa "jóna" . .
. . þessi spuni Össurar verður flokknum að líkindum enn þá dýrkeyptari en nokkurt "næturblogg" (sem nú hefur verið skrúfað fyrir um skeið) . . ."
Það má mikið vera að í Samfylkingunni, séu mál svona og að þessi Landsdómsálit verði flutt óbreytt á Alþingi. Auðvitað á Össur að vera á lista sakborninga og líklegast Jóhanna líka. Hún gæti þá orðið sömu ánægju aðnjótandi og hún ætlaði Björgvini, yfir því að fá að hreinsa sig af ásökunum fyrir dómi.
Best væri samt að tillagan um Landsdóm yrði dregin til baka og Alþingi ályktaði í stað þess, að það fordæmdi þau vinnubrögð löggjafans og framkvæmdavaldsins árin fyrir hrun ásamt því sem að Alþingi færi, eins fljótt og auðið er í þá vinnu að breyta lögum um Landsdóm og þá jafnvel fella þau bara inní löggjöf um almenn sakamál.
P.s Jón Þór Sturluson var aðstoðarmaður Björgvins og reyndar líka efnahagsráðgjafi Ingibjargar. Jón Sigurðsson var svo stjórnarformaður FME í hruninu en svo virðist sem að jörðin hafi gleypt hann eftir hrun....................Umræðu líklega frestað á morgun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
Bloggvinir
- axelaxelsson
- reykur
- baldher
- benediktae
- bjarnimax
- bookiceland
- dansige
- gisliivars
- fosterinn
- gauz
- gp
- gmaria
- noldrarinn
- hallarut
- halldorjonsson
- heimirhilmars
- hlf
- fun
- johanneliasson
- bassinn
- jonvalurjensson
- kristinnp
- krist
- kristjan9
- wonderwoman
- ludvikjuliusson
- magnusthor
- pallvil
- rannsoknarskyrslan
- rosaadalsteinsdottir
- heidarbaer
- ziggi
- saemi7
- ubk
- thjodarheidur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Af mbl.is
Innlent
- Aldrei runnið vestar: Um 100 metrar á klukkustund
- Nýr samningur við sjálfstætt starfandi leikskóla
- Yfir 300 stæði fóru undir hraun
- Fullvissa ferðamenn um að hér sé öruggt
- Flogið á milli ljósaskipta
- Beint: Kosningafundur eldri borgara með frambjóðendum
- Tafir á þjónustu vegna ágreiningsmála um þjónustu
- Viðgerðir munu taka nokkra daga
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.