Leita í fréttum mbl.is

"Þetta reddast"

Það sem drífur þessa ríkisstjórn og fylgismenn hennar áfram, er hið margnotaða mottó, "þetta reddast".
Steingrímur, kvittar undir Icesave, svo Félagi Svavar, komist í sumarfrí, vitandi það, að hann hefur ekki þingmeirihluta á bakvið sig í málinu.... "En það reddast", líklega hægt að "berja" einhvern til hlýðni, semja eða breyta frumvarpi.


ESB umsókn, samþykkt af flestum þingmönnum Vg
, ekki samkvæmt stefnuskrá Vg, en jú "þetta reddast", þvælumst bara fyrir og tölum gegn inngöngu þegar þar að kemur. Ríkisstjórninni allt.


Icesave, part 2 afgreitt á Alþingi. Fjorir þingmenn Vg andvígir, en tveir ganga úr skaftinu, þar sem "hugsanlega" gæti forsetinn, skotið málinu til þjóðarinnar,"það reddast" þar.


Lögfræðiálit vegna gengistryggðralána. Best að gera ekki neitt. Samningaviðræður við kröfuhafa, gætu komist í uppnám. Fjölskyldur að missa húsin sín? Ha er það? Nei það hlýtur að reddast.............

 

 Upp kemur Magma-mál, síðsumars 2009.  Vinstri grænir rísa upp á afturlappirnar og heimta lög á Magma.  Samfylking neitar.   Steingímur hugsar með sjálfum sér „þetta reddast", kannski get ég skrapað sama aur fyrir HS-Orku úr Ríkissjóði, eða bara látið lífeyrissjóðina kaupa heila klabbið.  Hvorugt gengur upp.  Kaup Magma á HS- Orku ganga í gegn.  Nefnd um erlenda fjárfestingu, endurtekur úrskurð sem hún hafði  áður birt.  Magma viðskipti skulu standa.  Vinstri grænir aftur á afturlappirnar.  Núna skal öllu Magmadæminu rift, annars stjórnarslit.  Vandanum skotið til nýskipaðrar nefndar, svokallaðrar „Magmanefndar".  Ekki beint til þess að leysa málið, enda skal nefndin bara gefa leiðbeinandi úrskurð.  Ekkert annað í boði, enda Magma-ferlinu ekki snúið nema með dómsúrskurði, eða lagasetningu.

 

 En á meðan „Magmanefndin" undirbýr „leiðbeinandi" álit sitt, krossleggja stjórnarflokkarnir fingur og hugsa með sér: „Þetta reddast".

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristinn Karl Brynjarsson
Kristinn Karl Brynjarsson
Ég hef mínar skoðanir, ekki endilega alltaf réttar.  Málefnaleg innlegg velkomin, en þeim sem geta ekki tjáð sig öðruvísi, en með svívirðingum um síðuhöfund, aðila þess máls, sem til umræðu er, hverju sinni eða með uppnefningum, er bent á eigin bloggsíðu.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 1684

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband