Leita í fréttum mbl.is

Að ,,gera embætti pólitísk". - Og eftiráspeki nýrra andstæðinga forsetans.

Fyrir utan svokallað útrásardekur forsetans, er honum það helst legið á hálsi að hafa breytt embætti forseta Íslands, úr því að vera svokallað sameingingartákn þjóðarinnar, í eitthvað pólitískt embætti, sem reki eftir vindum þjóðmála hverju sinni.

 Það er nú samt athyglisvert, að hvað báða þessa hluti varðar, þá voru nú þónokkrir þeirra er skammað hafa forsetann hvað mest, í liði þeirra er stóðu að baki fyrstu alvarlegu áskoruninni á forsetann að gera embættið pólitískt.  Þegar sett var í gang undirskriftasöfnun, þegar forsetinn var hvattur til þess að synja fjölmiðlalögunum staðfestingar.

Einn þeirra er mjög hafði sig frammi í þeirri undirskriftasöfnun, með sendingu hvatningartölvupósts um allar koppagrundir, er nú þingmaður Samfylkingarinnar, sem einnig beitti sér grímulaust við söfnun undirskrifta.   En þegar undirskriftasöfnunin var í gangi þá var sá hinn sami fréttamaður og síðar fréttastjóri, á fjölmiðli eins þeirra er kallaðir voru og eru reyndar enn kallaðir útrásarvíkingar. 

Fjölmiðli sem að líkt og aðrir fjölmiðlar, fjölluðu á frekar jákvæðan hátt um svokallað útrásardekur forsetans.  Enda var fosetinn að ,,liðka" um fyrir íslenskt viðskiptalíf, sem reyndar því miður stóð ekki traustari fótum, en  í ljós kom í október 2008. 

Án efa hefði áðurnefndur þingmaðuur, þáverandi fréttamaður á miðli útrásarvíkings, flutt harðorðar fréttir um sinnuleysi forsetans, gagnvart íslenski viðskiptasnilldinni, hefði forsetinn látið það vera að mæta í hin ýmsu boð útrásarvíkinga og að bjóða þeim til Bessastaða. 

Það er auðvelt en um leið þó lítilmannlegt að setjast í dómarasæti, með þeim hætti sem þingmenn og stuðningsmenn stjórnarflokkanna, hafa gert er þeir leggja dóm sinn á verk Ólafs Ragnars, með afleiðingar hrunsins beint fyrir framan sig.  Hruns sem varla er hægt að ætlast til þess að forseti Íslands, hefði átt að  sjá fyrir.  

 Þá væri jú alveg hægt að líta enn aftar í sögunna og skammast í fyrri forseta, fyrir að hafa ekki synjað EES-samningnum staðfestingar og sent hann í þjóðaratkvæði.  Eða þá þeim lögum er heimiluðu kvótaframsal, sem vinstristjórn Framsóknar, Alþyðubandalags og Alþýðuflokks, kom í gegnum þingið árið 1990.  


mbl.is Embættið pólitískt eftirsóknarverðara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tek undir þennan pistil þinn Jón.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.1.2012 kl. 17:08

2 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Þetta er alveg rétt.

Með sama hátt eru þeir sem skömmuðu forsetan mest vegna fjölmiðlalagana eru þeir sem hrósa honum fyrir Icesave.

Sleggjan og Hvellurinn, 1.1.2012 kl. 17:56

3 identicon

Vel mælt. Nú er spurningin, hvort mögulegt sé að skora á dr. Ólaf Ragnar að halda áfram eitt kjörtímabil enn, m.a. vegna þess að fyrirsjáanlega ´mun ný og/eða breytt stjórnarskrá taka gildi á næsta kjörtímabili forseta. Þá gæti verið þörf á að hafa mann á Bessastöðum, sem óvefengjanlega hefur meiri þekkingu og reynslu en flestir ef nokkur núlifandi á þessu sviði.

Serafina (IP-tala skráð) 1.1.2012 kl. 18:21

4 identicon

Rekkinn mun verða fyrstur manna til að skora á Ólaf Ragnar til að endurskoða ákvörðun sína að hætta. Nú hefur komið í ljós hversu mikilvægt forsetaembættið er þjóðinni þegar á reynir.

Kallinn í brúnni þarf að hafa bein í nefinu og vera klár á stefnunni svo ekki steyti á skerjum í ólgusjó. Auðvelt hefði verið að láta glepjast af þeim villuljósum sem komið var fyrir á Icesave skerinu á sínum tíma, þá dugðu ekki nema snör og fumlaus handtök Ólafs kafteins til að forða þjóðarskútunni frá skipbroti. 

Sérstaklega var eftir þessu tekið þegar kom í ljós að Jóka stýrimaður og Grímsi vélstjóri kunnu hvorugt að taka strikið né sigla eftir kompás, ekki einu sinni með tilsögn. Fengu þó tvær atrennur en klúðruðu báðum. Svo sá kallinn líka að hvorugt gat lagt að kaja með neinu lagi. Nú hefur kallinn áttað sig á því að þau eru varla hvorugt með pungapróf, ekki heldur Jóka. 

Það má því segja að það flokkist undir hálfgert kæruleysi hjá karlinum að fara að afmunstra sig af dallinum núna skiljandi þessa amlóða Jóku og Grímsa eftir um borð við stýrið.

Enda hver á Íslandi vill færa forsetaembættið til fyrra horfs aðrir er Jóka Grímsi og þeirra helstu attaníossar ásamt örfáum öðrum pólitískum hottintottum og furðuskríbentum úr 101 RVK.

Íslendingar þurfa síst á því að halda að setja nýja dúkkulísu á Bessastaði. Vigdís kláraði þann kafla íslandssögunnar. Það nægir.   

Rekkinn (IP-tala skráð) 1.1.2012 kl. 22:05

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jamm tek undir þetta með þér Rekkinn.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.1.2012 kl. 22:23

6 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Það er snjallt hjá Ólafi að stíga til hliðar nú og einbeita sér að þeim málum sem honum eru hugleikin og nýta þau sambönd sem hann hefur á frjálsum forsendum. Þá greiða þeir fyrir sem njóta og enginn getur gert athugasemdir við þau verkefni sem hann tekur að sér séu á kostnað skattgreiðeinda. Hann kemur auk þess til með að veita nýjum foreta töluvert aðhald næstu árin, meðan nýr forseti fótar sig í embættinu. En auðvitað þarf nýr forseti að hafa bein í nefinu og vera vel frambærilegur jaftn á innlendum sem erlendum vettvangi. Það dugir ekki að fá einhvern "heimalnings löfræðing" í þetta embætti heldur þurfum við að fá veraldarvanan heimsmann eða -konu.....

Ómar Bjarki Smárason, 1.1.2012 kl. 23:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristinn Karl Brynjarsson
Kristinn Karl Brynjarsson
Ég hef mínar skoðanir, ekki endilega alltaf réttar.  Málefnaleg innlegg velkomin, en þeim sem geta ekki tjáð sig öðruvísi, en með svívirðingum um síðuhöfund, aðila þess máls, sem til umræðu er, hverju sinni eða með uppnefningum, er bent á eigin bloggsíðu.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 1650

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband