Leita í fréttum mbl.is

(Ó)Öryggi innistæða á EES-svæðinu!!!

Hafi öll ríkin á EES-svæðinu tekið upp tilskipunina um innistæðutryggingar á svipuðum tíma og slíkt var gert hér á landi, þá hefðu ca. 12-15% af innistæðuupphæð hvers árs þurft að renna í tryggingarsjóðinn.  Svo allar innistæður í öllum bönkum á EES-svæðinu, hefðu verið tryggðar, þegar bankahrunið varð, haustið 2008.

Í mars 2008, var upphæðinn í breska sjóðnum, innan við. 10% af öllum innistæðum í breskum bönkum. Varla ástæða til að ætla að ástandið hafi verið mikið betra annars staðar.

Icesave  hefði aldrei verið leyft í UK eða NL, nema  innistæðutryggingar  hefðu verðið keyptar  í þeim löndum.  Annað hefði verið brot EU-regluverkinu.

 Það er óhugsandi annað en að tryggingin hafi verið notuð til að greiða út innistæðurnar, þegar Icesave hrundi, með Landsbankanum. Hins vegar má einnig ætla, að aðrir innistæðueigendur, hefðu áttað sig á því að lítið sem ekkert væri eftir í tryggingarsjóðnum til þess að tryggja þeirra innistæður. Hefði það farið hátt að tryggingarsjóðurinn hefði greitt út alla þessa upphæð.

 Nú á að gera innistæðutryggingar á EES svæðinu, ennþá ,,öruggari" með því að hækka upphæðina í 100.000 evrur. Frumvarp þess efnis er til meðferðar Alþingis  núna. Verði það að lögum, þá getur tryggingarsjóðurinn staðið undir falli eins banka á hundrað ára fresti.  Gamla tryggingin hefði staðið undir falli eins banka á ca. 20 ára ferli.


mbl.is Greinir á um lögmæti Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lúðvík Júlíusson

innistæðutryggingakerfið reiknar auðvitað með því að það séu til eignir á móti innistæðunum.  Þess vegna þurfi aldrei að nota allar eigur sjóðsins við uppgjör á kröfum innistæðueigenda.

Icesave var með tryggingu á bretlandi svokallaða top-up.  Hún snýst um að Bretar séu ábyrgir fyrir því sem vantar(ef það vantar eitthvað) upp að lágmarkstryggingunni á Bretlandi.

Íslenski sjóðurinn tryggði allar innistæður upp að 20.887 evrum og sá breski tryggði það sem vantaði frá þeirri upphæð að 50.000 pundum.

Lúðvík Júlíusson, 7.4.2011 kl. 08:51

2 identicon

 

Loks einhverjir í blogheiminum sem skilja hvað tryggingarnar snúast um. Flott hjá ykkur.  

En, kjósum samt bara nei, bara svona til að sjá hvað gerist - hvort við höfum ekki örugglega rétt / rangt fyrir okkur.

Jonsi (IP-tala skráð) 7.4.2011 kl. 10:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristinn Karl Brynjarsson
Kristinn Karl Brynjarsson
Ég hef mínar skoðanir, ekki endilega alltaf réttar.  Málefnaleg innlegg velkomin, en þeim sem geta ekki tjáð sig öðruvísi, en með svívirðingum um síðuhöfund, aðila þess máls, sem til umræðu er, hverju sinni eða með uppnefningum, er bent á eigin bloggsíðu.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband