Leita í fréttum mbl.is

Hrókeringar, kynjakvóti og sporslur.

Það skiptir í rauninni, engu máli hvað þessi ríkisstjórn gerir, annað en að fara frá, til þess að leiðin liggi eitthvað uppá við.  Hvort að í henni séu tíu karlar eða tíu konur, eða eitthvað þar á milli. 

  Reyndar virtist aðaláhyggjuefnið vera hjá þeim Skjaldborgarhjúum, að hlutfall kynjana hefði skekkst við þessa breytingu og lofuðu þau því breyta úr um áramótin. Það verður samt ekki lagað nema að hluta til þá, enda ekki hægt að fá jafna tölu við að 9 í tvo jafna hluti.

það er athyglisvert að Ögmundur, fékk að mótmæla því i Kastljósinu, án andsvars, þessa fullyrðingu að koma hans í stjórnina, hefði sett múl á órólegu deildina.   Álfheiður Ingadóttir lét hafa það eftir sér, að til þess að hægt yrði að ganga frá og samþykkja fjárlög fyrir 2011, hafi þurft að hleypa Ögmundi inn aftur.  Meðlimir órólegu deildarinnar, höfðu einmitt gefið í skyn að fjárlög yrðu vart samþykkt, nema komið yrði á móts við órólegu deildina.  Þannig að fréttin um múlinn, átti svo sannarlega rétt á sér. Svo er einnig athyglisvert að Ögmundur, hefur ekkert verið spurður, hvar sem hann hefur fengið að gapa, hver þessi nýi farvegur Icesavedeilunnar sé ? 

Á visir.is sá ég kenningu smíðaða af Vigdísi Hauksdóttur, að líklega hafi Álfheiði verið lofað, Atvinnumálaráðuneyti, um áramótin.  Taldi Vigdís margt benda til þess, vegna þess að hljóðláti háttur sem Álfheiður yfirgaf ríkisstjórn, hafi ekki alveg verið henni líkur og í rauninni grunsamlega hljóðlátur.   Ég tel það frekar hæpið, vegna þess að yrði svo, þá þyrftu tveir ráðherrar að hætta, í stað eins, eins og gert er ráð fyrir. 

Allir ráðherrar Vinstri grænna eru öruggir inni utan, Jón Bjarnason.  Eini möguleikinn á því að einhver Vg ráðherra hætti með Jóni er sá að Katrín Jakobs, gefist upp á menntamálunum og hætti þá jafnvel í pólitík.  Samfylkingin, lætur Vg. ekki það eftir að hafa 5 ráðherra af 9 í ríkisstjórn eftir áramót.  Þá yrðu slagsmál í þingflokki Samfylkingar og þingflokksherbergið ekki fokhelt, eftir þær aðfarir.

 Líklegast er því að öllu óbreyttu að Jón Bjarnason hætti með góðu eða illu og Katrín Júlíusdóttir taki við nýju Atvinnumálaráðuneyti.

 Líklegra er því að Álfheiði hafi verið boðin einhver staða á vegum hins opinbera, hafi þurft að kaupa hljóðláta útgöngu hennar með einhvrju móti.  Þar hljómar  t.d. forstjóri verðandi Fjölmiðlastofu ekki ólíklega, enda eru þeir Stazi-tilburðir sem að þar eru boðaðir, algerlega á pari við  pólitisk viðhorf Álfheiðar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristinn Karl Brynjarsson
Kristinn Karl Brynjarsson
Ég hef mínar skoðanir, ekki endilega alltaf réttar.  Málefnaleg innlegg velkomin, en þeim sem geta ekki tjáð sig öðruvísi, en með svívirðingum um síðuhöfund, aðila þess máls, sem til umræðu er, hverju sinni eða með uppnefningum, er bent á eigin bloggsíðu.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 1628

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband