Leita í fréttum mbl.is

Vanhæf stjórn Íbúðalánasjóðs.

Staða framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs, hefur verið laus, frá og með 1. júlí sl. .  Starfið var aulýgst laust til umsóknar í vor og var þá tilkynnt, að ráðið yrði í stöðuna frá og með 1. júlí 2010.

Var Capacent falið að annast ráðningarferlið og skila til stjórnar Íbúðalánasjóðs, lista yfir þá umsækjendur, er það metur hæfa í starfið. Sá listi liggur fyrir og hefur gert það vikum saman.

 Á þeim lista eru meðal annara, fyrrv. aðstoðarframkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs, sem gegnir embættinu á meðan beðið er ráðningar í embættið, og Yngvi Örn Kristinsson, fyrrv. forstöðumaður í gamla Landsbankanum. Eftir fall Landsbankans og stjórnarskiptin 1. feb sl. hefur Yngvi sinnt ýmsum ráðgjafaverkefnum, fyrir félags og tryggingamálaráðherra, ásamt því sem að Forsætisráðuneytið hefur haft aðgang að ráðgjafastörfum hans.

Þær sögur ganga, að Árni Páll Árnason, rói að því öllum árum að Yngvi Örn, verði valinn í embættið, en ekki sé samstaða um það í stjórn Íbúðalánasjóðs, frekar en um þá, einhvern hinna fjögurra er uppfylltu hæfniskröfur. 

 Telja má líklegt að Árni Páll, vilji bíða með ráðningu Yngva Arnar, í þeirri von að vandræðagangurinn, varðandi skipun og uppsagnar Runólfs Ágústssonar í embætti umboðsmanns skuldara.  Þó líklegra sé þó að meirihluti stjórnar Íbúðalánasjóðs, vilji hreinlega ekki Yngva Örn í embættið, enda þetta ráðningarferli mun eldra en ráðningarferli umboðsmanns skuldara.

 Sé það hins vegar svo að Yngvi Örn og áhugi ráðherra á að hann fái embættið, sé ekki ástæða þess, hversu illa gengur að skipa í stöðuna, þá hlýtur að koma upp sú spurning hvort að þeir einstaklingar sem sitja í stjórn Íbúðalánasjóðs, séu til þess hæfir.

Eða er stjórn Íbúðalánasjóðs treystandi að taka stórar ákvarðanir er varða þorra þeirra sem skulda húsnæðislán, ef hún getur ekki krafsað sig í gegnum einfalt ráðningarferli?


mbl.is Ekki enn ráðið í embættið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristinn Karl Brynjarsson
Kristinn Karl Brynjarsson
Ég hef mínar skoðanir, ekki endilega alltaf réttar.  Málefnaleg innlegg velkomin, en þeim sem geta ekki tjáð sig öðruvísi, en með svívirðingum um síðuhöfund, aðila þess máls, sem til umræðu er, hverju sinni eða með uppnefningum, er bent á eigin bloggsíðu.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 1685

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband