Leita í fréttum mbl.is

Trúverðug Magmanefnd, eða enn einn leikþáttur Skjaldborgarleikflokksins?

Sveinn Margerisson, var talinn óhæfur til setu í svokallaðri "Magmanefnd", vegna þess að móðurbróðir hans er giftur formanni nefndar um erlenda fjárfestingu, auk þess sem að hann á að hafa hringt í nefndarformanninn og hvatt hann til þess að úrskurða gegn Magma. 

 Bjarnveig Eiríksdóttir, er talin hæf til setu í "Magmanefnd" þrátt fyrir að hafa, sagt í fjölmiðlum, er Margrét Tryggvadóttir hugðist kæra úrskurð nefndar um erlenda fjárfestingu til ESA, að slík kæra hefði ekkert upp á sig, þar sem nær öruggt væri að, viðskipti Magma stæðust lög.  Einnig má geta að Bjarnveig, er varamaður í forsætisnefnd ESA og hefur því komið að samþykkt, útgáfu kæru eða kvörtunar á hendur Íslendingum, vegna Icesave.

Það er því vel hægt að segja að báðir þessir aðilar, hafi tjáð sig um mál um meinta "niðurstöðu" og klárlega tekið afstöðu til  máls, sem að þau ættu eftir að rannsaka og komast að niðurstöðu um.

Eins og fólk eflaust man, þá er svokallaðri "Magmanefnd" ætlað að kanna hvort niðurstaða nefndar um erlenda fjárfestingu, vegna Magma, standist lög ásamt því að fara ofan í saumana á sögu þess máls alls, sem kallað er "Magma-málið".

Nú er það svo, að þegar skipaðar eru nefndir, til þess að kanna hinu ýmsu hluti þá hefur það ekki þótt góð "latína" að einhver nefndarmaður hafi áður tjáð sig um eða gefið fyrirfram ákveðið álit á "mögulegri niðurstöðu nefndarinnar. Hefur aðili sem að slíkt hefur gert, nær undantekningalaust verið úrskurðaður, vanhæfur til setu í viðkomandi nefnd.

Það má líka vera hverjum manni ljóst, að þrátt fyrir slétt yfirborð í augnablikinu, þá er hvergi nærri nein sátt varðandi Magma, milli stjórnarflokkana.   Skoðanir og meiningar Bjarnveigar í málinu, endurspegla vilja Samfylkingar, en skoðanir og meiningar Sveins, endurspegla vilja Vinstri grænna.

 Það vekur einnig athygli að ekki var skipaður nýr aðili í nefndina, þó Sveinn væri dæmdur úr leik. 

Það hlýtur því að vera sanngjörn spurning, hvort þessari "Magmanefnd", sé ætlað eitthvað "alvöru hlutverk" í því að komast að viðeigandi niðurstöðu vegna Magma, eða þá að þessi nefnd sé eingöngu "persónur og leikendur" í enn einum leikþætti Skjaldborgarleikhússins?


mbl.is Telur Bjarnveigu vera hæfa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristinn Karl Brynjarsson
Kristinn Karl Brynjarsson
Ég hef mínar skoðanir, ekki endilega alltaf réttar.  Málefnaleg innlegg velkomin, en þeim sem geta ekki tjáð sig öðruvísi, en með svívirðingum um síðuhöfund, aðila þess máls, sem til umræðu er, hverju sinni eða með uppnefningum, er bent á eigin bloggsíðu.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 1649

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband