Leita í fréttum mbl.is

Þjóðhættuleg verkstjórn!!!

Eins og fólki ætti að vera í fersku minni, þá voru sterkustu rök fyrir skipun Jóhönnu Sigurðardóttur í embætti forsætisráðherra sú, að hún byggi yfir verkstjórnarhæfileikum á "heimsmælikvarða".

 Góður verkstjóri nýtur trausts og virðingar, bæði undirmann sinna og umbjóðenda. Góður verkstjóri er vel upplýstur um hvað undirmenn hans aðhafast, því hann nýtur trausts þeirra og þeir hafa ekkert að fela fyrir honum.  Góður verkstjóri veit til hvers umbjóðendur hans ætlast til af honum og ef að verkstjórninn, rækir þær skyldur með sóma, þá nýtur hann trausts og virðingar umbjóðenda sinna.

 Í ljósi "farsans" með lögfræðiálit Seðlabankans, er alveg ljóst að verkstjórinn er rúinn trausti og virðingu undirmanna sinna og má spyrja hvaða öðrum upplýsingum, gæti verið haldið frá verkstjóranum, sem varðað gætu þjóðarhag.

Það er líka alveg ljóst að verkstjórinn og undirmenn hans eru rúnir trausti og virðingu umbjóðenda (þjóðarinnar) sinna.  

Þegar þannig er ástatt með verkstjórann og hans fólk, þá valda þessir aðilar meiri skaða með áframhaldandi störfum sínum. Verkstjóranum, ber því að segja starfi sínu lausu um leið og hann ritar undirmönnum sínum uppsagnarbréf.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristinn Karl Brynjarsson
Kristinn Karl Brynjarsson
Ég hef mínar skoðanir, ekki endilega alltaf réttar.  Málefnaleg innlegg velkomin, en þeim sem geta ekki tjáð sig öðruvísi, en með svívirðingum um síðuhöfund, aðila þess máls, sem til umræðu er, hverju sinni eða með uppnefningum, er bent á eigin bloggsíðu.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 1683

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband