Leita í fréttum mbl.is

Dýrar málamiðlanir við frekjupunga í minnihluta.

http://m.visir.is/forsida/Frett?ArticleID=2013703029999

 

Mig langan að minna á annars ágæta grein Þorsteins Pálssonar, þar sem beinlínis er kallað eftir því að Sjálfstæðisflokkurinn opni málefnastöðu sína  fái flokkurinn umboð stjórnarmyndunar.

Sér í lagi eftirfarandi texta úr greininni:


„Fyrir landsfundina um síðustu helgi benti flest til þess að þrír flokkar; Sjálfstæðisflokkurinn, Framsóknarflokkurinn og VG, myndu ganga til kosninga með samræmda stefnu um að hætta aðildarviðræðunum. Þeir eru líklegir til að fá ríflegan meirihluta. Aðeins tveir flokkar hefðu þá viljað ljúka viðræðunum: Samfylking og Björt framtíð. Eins og horfir verða þeir í afgerandi minnihluta.

Hefði VG samþykkt að slíta viðræðunum var áframhaldandi samstarf við Samfylkinguna úr sögunni. Nú er sá kostur opinn með Bjartri framtíð. Sjálfstæðisflokkurinn er ekki einangraður en hann hefur málefnalega takmarkað stjórnarmyndunarmöguleika sína við Framsóknarflokkinn. Margt bendir því til að kosningarnar muni snúast um þessar tvær fylkingar.“

 Með umboð til stjórnarmyndunar hefði flokkurinn ekki verið dæmdur til þess að eiga aðeins samleið með Framsókn.   Hefði ekki til þessarar opnunar komið.

Í fullkomnum heimi hefði Þorsteinn væntanlega viljað að flokkurinn sneri alfarið baki landsfundarsamþykkt sinni og talaði hreint út um áframhald viðræðna,  án skilyrða.  Forysta flokksins braut þó engu að síður verulega odd af oflæti sínu og teygði sig verulega langt frá landsfundarsamþykkt flokksins  með þessu skiyrðisbunda loforði sínu um þjóðaratkvæði. 

Margir sjálfstæðismenn höfðu það á orði við mig fyrir kosningar að full langt væri seilst til málamiðlunar við tiltölulega lítinn en afar háværan hóp innan Sjálfstæðisflokksins, Sjálfstæða Evrópumenn.  Enda hafi samþykkt landsfundar verið skýr.

Lærdómurinn sem forysta Sjálfstæðisflokksins getur þó tekið út úr þessu öllu er sá að Sjálfstæðir Evrópumenn eru engir menn málamiðlana.  Heldur má segja að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hafi lýst þeim hópi ágætlega með eigin orðum þegar hún talaði um frekjupungapólitík.

Við lærdóminn af þessu máli getur svo forysta flokksins bætt við reynsluna af því að hafa að atlagi Sjálfstæðra Evrópumanna, kvikað frá landsfundarsamþykkt flokksins vegna löglausra krafna í Icesavemálinu. 

Enda má segja að kosningabaráttan hafi verið brattabrekka allt frá því að lyktir Icesavemálsins urðu ljósar með dómi EFTA-dómstólsins.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já! var þessi maður ekki að tala um svik aldarinnar eða eitthvað álíka, sem hann sagði Sjálfstæðisflokkinn hafa framið?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.3.2014 kl. 18:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristinn Karl Brynjarsson
Kristinn Karl Brynjarsson
Ég hef mínar skoðanir, ekki endilega alltaf réttar.  Málefnaleg innlegg velkomin, en þeim sem geta ekki tjáð sig öðruvísi, en með svívirðingum um síðuhöfund, aðila þess máls, sem til umræðu er, hverju sinni eða með uppnefningum, er bent á eigin bloggsíðu.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 1591

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband