Leita í fréttum mbl.is

Af friði og árangri í kjaramálum.

Á heimasíðu sinni skrifar Björn Valur Gíslason varaformaður Vinstri grænna meðal annars:

„Kjörtímabil ríkisstjórnar Vinstri grænna og Samfylkingar er eitt af örfáum kjörtímabilum sem friður ríkti á vinnumarkaðinum. Á kjörtímabilinu voru gerðir kjarasamningar (sumarið 2011) sem nauðsynlegt var að gera þó svo að það hafi kostað töf á efnahagsáætlun stjórnvalda.“

 

Björn Valur telur það eflaust ekki skipta máli að geta stöðugleikasamningnum sem gerður var við aðila vinnumarkaðsins í upphafi síðasta kjörtímabils.  Enda reyndist hann,  eins og flest annað, sem fyrri ríkisstjórn gerði  í þágu fólksins í landinu, marklaust plagg og pappírstætaramatur.

 

Eins telur Björn Valur eflaust ekki taka því að láta fram koma loforðalista hinnar norrænu velferðarstjórnar í tengslum við kjarasamninganna sumarið 2011.  Enda hann jafn marklaus og stöðugleikasamningurinn sem gerður var tveimur árum áður.  En á þeim lista var:

 

  • Hækkun atvinnuleysisbóta til jafns við hækkun lægstu launa – ekki efnt
  • Hækkun bóta almannatrygginga til jafns við hækkun lægstu launa – ekki efnt
  • Fyrstu skref stigin í jöfnun lífeyrisréttinda fólks á almennum markaði til jafns við   opinbera starfsmenn – ekki efnt
  • Afnám laga um skattlagningu á lífeyrisréttindi fólks á almennum markaði – ekki efnt
  • Gengi krónunnar styrkt – ekki efnt
  • Verðbólga í takt við verðbólgumarkmið Seðlabankans (2,5%) – ekki efnt
  • Rammaáætlun afgreidd í samræmi við tillögu sérfræðinganefndar – ekki efnt
  • Róttækar aðgerðir í atvinnumálum og auknar fjárfestingar – ekki efnt.

 

Vandinn  við loforðalistanna tvo er hins vegar sá að þeir aðilar sem lofað er aðgerðum hafa  lítil sem engin úrræði til þess að innheimta loforðin.

  Vera má að í ljósi þess hafi fyrri stjórnvöldum verið það ljóst að það í rauninni skipti engu máli hvort loforðin yrðu efnd eða ekki.  Bara að það skapaðist „tímabundinn“ friður á vinnumarkaði.   Það yrði svo næstu ríkisstjórnar að taka afleiðingum vanefndanna.  Yrðu þær einhverjar.

 

Ekki er Birni Vali heldur ofarlega í huga sá ófriður sem var megnið af síðasta kjörtímabili um kjör starfsstétta á Landsspítalanum og annars  staðar í heilbrigðisgeiranum. 

Það er  því ekki  hægt að sjá eða segja annað en að hin norræna velferðarstjórn – ríkistjórn jafnréttis og félagshyggju, hafi skilað auðu í kjaramálum. 

Í besta falli skotið öllum ófriði á frest og ætlað öðrum að leysa úr þeim úrlausnarefnum sem hún sjálf  hummaði fram af sér.  Úrlausnarefnum sem gera ekkert annað en að vinda upp á sig, sé úrlausn þeirra frestað.

Sé þetta mælikvarði Björns Vals um árangur fyrri ríkisstjórnar í kjaramálum, er varla við því að búast að hann geri miklar kröfur til núverandi ríkisstjórnar í þeim málaflokki.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eyjólfur G Svavarsson

Enginn tekur mark á Birni Vali.

Eyjólfur G Svavarsson, 30.7.2013 kl. 01:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristinn Karl Brynjarsson
Kristinn Karl Brynjarsson
Ég hef mínar skoðanir, ekki endilega alltaf réttar.  Málefnaleg innlegg velkomin, en þeim sem geta ekki tjáð sig öðruvísi, en með svívirðingum um síðuhöfund, aðila þess máls, sem til umræðu er, hverju sinni eða með uppnefningum, er bent á eigin bloggsíðu.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband