Leita í fréttum mbl.is

Áttu fjárlög 2001 að dekka allan kostnað við kerfið um aldur og ævi?

Það er eitt sem undirritaður er að velta fyrir sér.  Ákveðið er um aldamótin að kaupa kerfi sem þetta og byrja  á því að leita tilboða  í kerfi sem komið gæti til greina.

Til þess að geta farið af stað árið 2001, var leitað heimildar í fjárlögum fyrir árið 2001, 160 milljónum. Sú tala var sett fram, áður en farið í að leita tilboða og hefur verið sá kostnaður sem áætlaður hafi verið við útboðsferlið það árið.

Eins og flestir ættu að vita, þá eiga fjárlög bara við það ár sem þau eru kennd við, þ.e. fjárheimildir til einhverra verkefna, gilda bara fyrir tiltekið ár. Taki verkefnið lengri tíma eða frestast, þá þarf aftur að leita heimilda í fjárlögum næsta árs fyrir verkefnið og svo koll af kolli.

Hefur kostnaður við kerfið verið nánast alltaf innan fjárheimilda, þau ár sem liðin eru.   Í það minnsta sá kostnaður sem fellur beint á Fjársýsluna að standa undir.   Sá hluti sem stofnanirnar sjálfar hafa þurft að standa undir, u.þ.b. þriðjungur  eða svo , hlýtur svo að vera innan þeirra heimilda sem stofnanirnar hafa samkvæmt fjárlögum og fjáraukalögum hvers árs.

Ætla mætti því, af umræðunni um 25faldan kostnað við hafi menn haldið að, uppsetningu myndi ljúka árið 2001 og ekki myndi kosta krónu að láta kerfið rúlla innan ríkisbatterýsins um ókomin ár.

Svo má alveg deila um, hvort gallarnir við kerfið séu of margir of stórir  of margir frændur komið að ferlinu o.s.f.v.. En hafa verður þó í huga, að ekki hefur enn tekist að hanna forrit (kerfi) sem fellur að þörfum allra notenda í einu og öllu. Umfang hnökrana hlýtur  að vera í réttu hlutfalli við, stærð og margbreytileik þess er kerfið notar.


mbl.is Gallar á kerfinu hafa verið lagfærðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Góður pistill. Óvanalegt að sjá umræðu á málefnalegum nótum um þetta mál.

Axel Jóhann Axelsson, 26.9.2012 kl. 22:26

2 identicon

það sem þú varst að tala um í morgun

carl (IP-tala skráð) 27.9.2012 kl. 13:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristinn Karl Brynjarsson
Kristinn Karl Brynjarsson
Ég hef mínar skoðanir, ekki endilega alltaf réttar.  Málefnaleg innlegg velkomin, en þeim sem geta ekki tjáð sig öðruvísi, en með svívirðingum um síðuhöfund, aðila þess máls, sem til umræðu er, hverju sinni eða með uppnefningum, er bent á eigin bloggsíðu.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 1610

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband