Leita í fréttum mbl.is

Að álykta annað en er....

Á fundi í Valhöll í gærkvöldi, mættust þeir Árni Páll Árnason þingmaður Samfylkingar og Illugi Gunnarsson þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins.  Hefur sá fundur eflaust verið um margt góður, en undirritaður átti ekki heimangengt og komst því ekki á fundinn, til þess að verða vitni að því. 

Hins vegar reiknar yðar einlægur með því að evrópumálin og evrukrísan hafi verið þar ásamt mörgu öðru til umræðu.

Reyndar er ljóst miðað við það sem ég sá á einni bloggsíðu hér á Moggablogginu að evrukrísan hið minnsta var til umræðu.  Spurning úr þeirri umræðu og svarið við henni, er einmitt það sem þetta blogg snýst um og að mínu mati, heiftarleg rangtúlkun á svarinu.  Þar sem svarið var í raun túlkað sem möguleg kúvending á stefnu Sjálfstæðisflokksins til ESB-aðildar.  

En hér að neðan kemur spurningin:

"Aðspurður hvort Illugi "st[yddi] myndun sambandsríkis ESB" sagði hann JÁ, "það verður að gera til að vernda evruna." Ennfremur mætti hún ekki verða illa úti vegna áhrifa á Ísland (þ.e. ef evran hrynur)."

Hafi spurningin verið svona og svarið einnig, þá segir það í rauninni ekkert um afstöðu Illuga eða Sjálfstæðisflokksins til aðildar að ESB. Ekkert í svarinu gefur tilefni til þess að stefnan sé önnur en síðasti landsfundur Sjálfstæðisflokksins markaði, þ.e. að íslenskum hagsmunum sé betur borgið, án aðildar að ESB.

Hins vegar lýsir svarið þeirri skoðun Illuga, að til þess að evrusamstarfið eigi sér einhverja lífsvon, þá þurfi svokallað sambandsríki ESB að koma til.

Það hljóta flestir að átta sig á því, óháð því hvort þeir séu fylgjandi aðild að ESB eða ekki, að hrun evrusvæðisins kæmi sér illa fyrir Ísland með útflutningsgreinarnar í huga.

Reyndar hefur krísan á evrusvæðinu nú þegar, skapað vandræði hjá saltfisks og skreiðarframleiðendum, sem selja afurðir sínar til Suður Evrópu, þar sem evrukrísan hefur komið  hvað harðast niður á evrusvæðinu.

Hins vegar þarf fjörugt ímyndunarafl eða skáldagáfu til þess að túlka svarið við spurningunni hér að ofan sem einhverja kúvendingu í afstöðu til aðildar að ESB. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

   Þakka þér fyrir þetta,hafa skal það sem sannara reynist.

Helga Kristjánsdóttir, 22.9.2012 kl. 12:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristinn Karl Brynjarsson
Kristinn Karl Brynjarsson
Ég hef mínar skoðanir, ekki endilega alltaf réttar.  Málefnaleg innlegg velkomin, en þeim sem geta ekki tjáð sig öðruvísi, en með svívirðingum um síðuhöfund, aðila þess máls, sem til umræðu er, hverju sinni eða með uppnefningum, er bent á eigin bloggsíðu.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband