Leita í fréttum mbl.is

Eintóna blaður forsætisráðherra.

,,Við höfum þurft að glíma við stjórnarandstöðuna bæði á þingi og í fjölmiðlum sem hefur að stórum hluta verið óvenjulega heiftúðug og ómálefnaleg, og óvæntar ákvarðanir Hæstaréttar og forseta Íslands hafa reynt mjög á þanþol stjórnmálanna,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir í setningarræðu sinni á landsfundi Samfylkingarinnar.

Það getur nú varla talist merkilegt, að forsætisráðherra í ríkisstjórn, hvar sem er í hinum vestræna heimi, þurfi að berjast við stjórnarandstöðu á þingi.  Eða þá að fjölmiðlum í frjálsu landi dirfist það, að vera á móti stefnu þeirrar ríkisstjórnar, er er við völd hverju sinni.

Hvað forsetann varðar, þá ætti nú Jóhanna að fá hann Hrannar sinn, til þess að skrifa forsetanum þakkarbréf fyrir það, að hafa haft vit fyrir sér og meðhlaupurum sínum í Icesavedeilunni.   Staða ríkissjóðs í dag, þó slæm sé, er þó barnaleikur miðað við þá stöðu er uppi væri, hefði annað hvort Svavars eða Indriðasamningurinn orðið að lögum. 

 Það er valkvæð gleymska Jóhönnu og meðhlaupara hennar, að gleyma þeim hundruðum milljarða sem ríkissjóður hefði þurft að reiða fram vegna þeirra vaxta er samið var um í ofangreindum samningum.

Það er reyndar vonandi rétt, að þrotabú Landsbankans, mun geta greitt þær  Icesaveinnistæður er töpuðust við fall Landsbankans.   Er því helst að þakka, að í neyðarlögunum var gert ráð fyrir því að innistæðurnar nytu forgangs.  Vextina er samið var um hefði hins vegar ríkissjóður þurft að greiða og til þess þurft að auka lántökur ríkissjóðs um hundruðir milljarða.  Enda vextir vegna Icesave ekki í kröfuforgangi.

Líklegast þarf líka Jóhanna að þakka stjórnarandstöðuni fyrir framlag sitt við það að stöðva framgang ,,Stóra frumvarpsins“ um stjórn fiskveiða.   Eftir að hafa þvælt málinu vetrarlangt á milli flokka, eftir niðurstöðu sáttanefndarinnar er stjórnarflokkarnir skrifuðu uppá, var á síðustu dögum þingsins lagt fram frumvarp um stjórn fiskveiða.

 Nær allir þeirra er komu að gerð þess frumvarps, sem og allir umsagnaraðilar, hafa sagt frumvarp þetta meingallað.  Það segir sig því sjálft, að hefði  stjórnarandstaðan hleypt málinu í gegn síðast liðið vor.  Þá væru í gildi núna  nýsamþykkt lög um stjórn fiskveiða, sem ekki einu sinni þeir flokkar er að samþykkt þeirra stóðu, væru ánægðir með. 

Hvað Hæstiréttur kann að hafa gert á hlut Jóhönnustjórnarinnar, er ekki gott að segja, nema þó helst að hann úrskurðaði kosningar til stjórnlagaþings ógildar.  Nema ef að ske kynni að gengislánadómar Hæstaréttar hafi knúið ráðherra ríkisstjórnarinnar til þess að leggja fram frumvarp að lögum, sem ekki einu sinni ráðherranir sjálfir skilja, samanber skilningsleysi Árna Páls Árnasonar  viðskiptaráðherra á eigin lögum um endurreikning á uppgjöri ólögmætra gengislána.

Samkvæmt stjórnarskrá, þá á Hæstiréttur að dæma eftir lögum.  Finnist forsætisráðherra eitthvað upp á það vanta, þá á ráðherrann að nefna dæmi þess efnis og rökstyðja þau.  En ekki grafa undan þessum æðsta dómstóli landsins, með  lýðskrumskenndum upphrópunum og hálfkveðnum vísum.

 


mbl.is Stolt af því að vera formaður áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Sammála...

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 23.10.2011 kl. 03:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristinn Karl Brynjarsson
Kristinn Karl Brynjarsson
Ég hef mínar skoðanir, ekki endilega alltaf réttar.  Málefnaleg innlegg velkomin, en þeim sem geta ekki tjáð sig öðruvísi, en með svívirðingum um síðuhöfund, aðila þess máls, sem til umræðu er, hverju sinni eða með uppnefningum, er bent á eigin bloggsíðu.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 1602

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband