Leita í fréttum mbl.is

Hvað skýrir þá níu mánaðatöf á frágangi, nærri kláraðs samnings?

 Jóhanna sagð á þinginu í morgun, að þetta svokallaða ,,betra tilboð" sem lá á borðinu í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar í mars, hafi verið nánast eins og nýgerður Icesavesamningur.  Þetta leyfir hún sér að segja, þrátt fyrir að ekki sé búið að reikna út þetta ,,betra tilboð".

Reyndar var þetta ,,betra tilboð", það æðislegt, að fólk þyrfti ekkert að ómaka sig við það að mæta á kjörstað og taka þátt í þeim marklausa skrípaleik, sem þjóðaratkvæðið væri að hennar mati.  ,,Betra tilboðið stæði, hvort sem lög nr. 1/2010 yrðu felld eða ekki í þjóðaratkvæðinu. 

En gott og vel.  Það hefur legið fyrir síðan Svavar Gestsson, nennti ekki að hanga erlendis á einhverjum samningafundum, um jafn ,,ómerkilegt" og Icesave, að ríkisstjórnin hefur viljað leysa deiluna, helst í gær.

Það lítur í því samhengi fáranlega út, að tekið hafi heila níu mánuði, til þess að ganga frá nærri kláruðum samningi. Reyndar voru kosningar í vor bæði í Bretlandi og Hollandi, en þær hefðu samt ekki átt að tefja málið nema um örfáar vikur, ekki níu mánuði. 

Reyndar lét Lárus Blöndal, samningamaður hafa það eftir sér, á blaðamannafundinum er nýju samningarnir voru kynntir, að þessi samningur hefði í rauninni verið klár í september. Hins vegar þótti það vart þorandi að bera hann á borð þjóðarinnar, vegna þeirrar ólgu sem þá var í þjóðfélaginu.

  Það mál í september, sem olli ólgu í þjóðfélaginu, var landsdómsmálið.  Hasarinn vegna skuldavanda heimilana hófst ekki fyrr en í október.

Þá hlýtur að vera sanngjarnt að spyrja:  Var þá allt í einu mikilvægara að ákæra Geir H. Haarde fyrir landsdómi og hugsanlega Árna Matt, heldur en að leysa Icesavemálið? Mál sem stjórnarliðar, hafa nánast ekki getað sofið vegna síðastliðið eitt og hálft ár.  Eða er það kannski svo að samanburðurinn á nýja samningnum og þeim gamla, sem Steingrímur J. lagði pólitíska æru sína að veði fyrir, hefði gert ákæruatriðin á hendur þeim Geir og Árna, hlægileg?


mbl.is Áttum kost á Icesave-samningi í mars
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú dregur þetta vel saman. Ég vona að spunavélar stjórnarinnar fari nú að springa hressilega í andlitið á þeim. Heilbrigt fólk hlýtur að sjá þetta þótt fjölmiðlarnir geri það ekki!

Ég held að framleiðendur "Yes Minister" þáttanna finni meira efni frá íslensku spunastjórninni eftir tæplega 2ja ára setu en þeir hafa fundið hjá þeim bresku frá upphafi. 

Björn (IP-tala skráð) 15.12.2010 kl. 19:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristinn Karl Brynjarsson
Kristinn Karl Brynjarsson
Ég hef mínar skoðanir, ekki endilega alltaf réttar.  Málefnaleg innlegg velkomin, en þeim sem geta ekki tjáð sig öðruvísi, en með svívirðingum um síðuhöfund, aðila þess máls, sem til umræðu er, hverju sinni eða með uppnefningum, er bent á eigin bloggsíðu.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband