Leita í fréttum mbl.is

Stjórnsýsluskóli stjórnvalda og Íbúðalánasjóður.

Þann 19. águslt sl., daginn áður en ríkisstjórnin, tilkynnir að loknum ríkisstjórnar fundi þann 20. ágúst sl.,  stofunun Stjórnsýsluskólans, ákveða fjórir af fimm stjórnarmönnum Íbúðalánasjóðs að ráða Ástu H. Bragadóttir, sem framkvæmdastjóra sjóðsins til næstu fimm ára.

 Stjórnsýsluskóla þessum er meðal annars ætlað það hlutverk, að fræða undirmenn ráðherra ríkisstjórnarinnar og aðra lykilmenn í stjórnsýslunni, um vandaða og heilbrigða stjórnsýsluhætti.  Má spyrja hvaða hugur, eða hvort yfir höfuð standi eitthvað á bakvið ákvörðun stjórnvalda um stofnun skólans, annað en ódýr sýndarmennska?  

 Ég er þess fullviss að ég er ekkert að vanmeta Jóhann Ársælsson, fulltrúa Samfylkingarinnar í stjórn ÍLS, þann eina fulltrúa í stjórninni sem greiddi ekki atkvæði með ráðningu Ástu, þegar ég segi að beiðni hans um frestun ákvörðunar hafi í raun ekki verið hugarfóstur hans sjálfs, heldur hefur Jóhann verið að hlýða beiðni ráðherra um að koma í veg fyrir ráðningu Ástu.  Ráðherra hafi lofað öðrum starfinu ( Yngva Erni Kristinssyni).  Það hafi ráðherra gert, þrátt fyrir að lögum samkvæmt, ráði stjórn ÍLS í stöðu framkvæmdastjóra, en ekki ráðherra.

Formaður stjórnar ÍLS, á því að hafa þann manndóm í sér að kalla stjórnina saman aftur, hið fyrsta, helst strax á mánudag og kalla Ástu á fund stjórnarinnar.  Þar á stjórnin að byrja á því að biðja Ástu afsökunar á því að hafa látið undan ólögmætum þrýsingi ráðherra og bjóða henni að taka starfinu, treysti hún sér til þess, í ljósi undangengra atburða.   Hafi stjórnin ekki manndóm til þess að standa á lögskipuðu hlutverki sínu, skal hún í heild víkja, nú þegar.

Árni Pall Árnason á hins vegar að skammast sín og biðjast lausnar frá embætti félags og tryggingarmálaráðherra.


mbl.is Segir ráðherra sýna vanvirðingu á lögum og Alþingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Í lögum um húsnæðismál (lög 44/1998) segir skýrum orðum að:

 

Stjórn Íbúðalánasjóðs ræður framkvæmdastjóra til fimm ára í senn.

 

Ef það er svo, að stjórnin ræður ekki við þetta verkefni, þá er rétt að hún segi af sér störfum. Afskipti ráðherra eiga ekki að líðast, en það er allt á sömu bókina lært hjá Árna Páli Árnasyni. Pétur H. Blöndal fer með rétt mál þegar hann segir:

 

Það er ólíðandi að þetta gerist aftur og aftur, fyrst við ráðningu í embætti umboðsmanns skuldara og núna hjá Íbúðalánasjóði að ráðherra sé að hlutast til um og grípa inn í ferli, sem mælt er fyrir um í lögum. Það er stjórn Íbúðalánasjóðs sem ræður framkvæmdastjórann, ekki ráðherrann.

 

Þarna er auðvitað á ferðinni valdstjórnar-eðli Sossanna. Þetta er angi af hugmyndafræði þeirra um“blandað hagkerfi”, “torgreinda peningastefnu” og “pilsfalda kapítalisma”. Þessi hugmyndafræði er jafnframt orsök hund-þrjósku þeirra að greiða Icesave-kröfur nýlenduveldanna. Forustumenn Sossanna hafa sagt það berum orðum, að allar gerðir stjórnkerfisins séu á ábyrgð almennings.

 

Samkvæmt þessari heimskulegu hugmyndafræði, ætti kjósendur Samfylkingar ogVinstri-Grænna því að bera kostnað af öllum heimskupörum Icesave-stjórnarinnar, en aðrir ættu ekki að koma að uppgjörinu. Því miður er ekki hægt að komast neitt áleiðis með hugmyndafræði Sossa og Komma. Þetta er ein hringavitleysa sem leiðir ógæfu yfir allar þjóðir.

  

 

Loftur Altice Þorsteinsson, 28.8.2010 kl. 16:56

2 Smámynd: Jón Sveinsson

ER ÞÉR HJARTANLEGA SAMMÁLA LOFTUR ATLICE ÞORSTEINSSON.

Jón Sveinsson, 28.8.2010 kl. 18:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristinn Karl Brynjarsson
Kristinn Karl Brynjarsson
Ég hef mínar skoðanir, ekki endilega alltaf réttar.  Málefnaleg innlegg velkomin, en þeim sem geta ekki tjáð sig öðruvísi, en með svívirðingum um síðuhöfund, aðila þess máls, sem til umræðu er, hverju sinni eða með uppnefningum, er bent á eigin bloggsíðu.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 1591

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband