Leita í fréttum mbl.is

Þegar aðstoðarmenn ráðherra, fara í "drullugallann", fyrir Hæstvirtan ráðherra.

 Þessi tilraun Elíasar Jóns, aðstoðarmanns menntamálaráðherra, til þess að setja umræðuna í þann farveg sem ríkisstjórninni, er "þóknanleg", flokkast, óæskileg vinnubrögð í þeim tilgangi einum að slá ryki í augu fólks.  

Það má vera lýðnum ljóst, að Elías, tók ekki upp á þessu hjá sjálfum sér og þetta er varla eina tilvikið, sem að slíkt hefur verið reynt áður.   Elías, sem aðstoðarmaður menntamálaráðherra, gerir svona hluti, eingöngu með samþykki og vilja menntamálaráðherra, nema þá að fyrrum húsbóndi hans, Steingrímur J., fjármálaráðherra, hafi sett honum fyrir verkefnið.

Hver sem ástæðan er þá starfar Elías á ábyrgð menntamálaráðherra og öll hans orð í umræðu um opinber mál, við blaðamenn, hvort sem þau eru "on eða off the record", nánast hægt að túlka sem ráðherrans sjálfs.

 Á þessu ári eru tvö atvik opinber, um meint "solo" aðstoðarmanna ráðherra, bæði vegna Icesavemálsins. Hið fyrra var, er aðstoðarmaður utanríkisráðherra, fór við annan mann í Bandaríska Sendiráðið, skömmu eftir að forsetinn hafði synjað Icesavelögunum staðfestingar.  Sú heimsókn átti að fara leynt, enda var erindið vægast sagt vafasamt, samkvæmt þeim skýslum úr Bandarísku stjórnsýlunni, sem láku út og komu þar upp um heimsóknina.

 Hitt tilfellið var, þegar aðstoðarmaður forsætisráðherra, "hraunaði" yfir Evu Jolie í blaðagrein.  Eva hafði  þá að mati aðstoðarmannsins og þá forsætisráðherra líka, unnið sér það eitt til sakar að skrifa greinar sem birtust í erlendum blöðum og studdu málstað íslensku þjóðarinnar í Icesavedeilunni. Málstaður sá er allt annar en íslensk stjórnvöld halda á lofti og því þurfti aðstoðarmaðurinn að "fórna" sér í drullugallann fyrir forsætisráðherra.

 Ekki veit ég hver örlög Elíasar, verða í starfi aðstoðarmanns menntamálaráðherra, enda hans "bommerta" það nýskeð. Hitt veit ég, að ef að hin atvikin tvö, hefðu ekki verið með vitund og vilja og jafnvel að áeggjan hinna ráðherrana, þá hefðu þeim aðstoðarmönnum, tafarlaust verið vikið frá störfum með skömm.


mbl.is Ekkert óeðlilegt við tölvupóst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Skammarlegast er þó að hann skuli reyna að kenna syni sínum um lekann. Það er jafnvel verri afsökun en "hundurinn át heimavinnuna".

Guðmundur Ásgeirsson, 27.7.2010 kl. 21:44

2 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Já hún var töluvert skárri, en er þetta ekki öfugt með Forsætisráðherra er hún ekki aðstoðarmanneskjan og frontur Hrannars?

Högni Jóhann Sigurjónsson, 27.7.2010 kl. 23:18

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

"Hirðspunameistari" væri kannski réttur titill á hann...

Guðmundur Ásgeirsson, 28.7.2010 kl. 03:04

4 Smámynd: Guðjón Eiríksson

Þetta mál ber vott um þá slæmu þróun sem á sér stað í pólitíkinni og ég hygg að enginn stjórnmálaflokkur sé í raun saklaus af vinnubrögðum sem þessum.

Nema þá kannski sá flokkur sem aldrei hefur setið í ríkisstjórn, því eins og Kristinn bendir á er yfirleitt um að ræða aðstoðarmenn ráðherra.

Ég er hins vegar ekki viss um að þetta sé "óvart"

Frekar eins og svokölluð smjörklípa, þ.e. draga athyglina frá aðalatriðum málsins og beina henni eitthvað annað.

Guðjón Eiríksson, 28.7.2010 kl. 20:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristinn Karl Brynjarsson
Kristinn Karl Brynjarsson
Ég hef mínar skoðanir, ekki endilega alltaf réttar.  Málefnaleg innlegg velkomin, en þeim sem geta ekki tjáð sig öðruvísi, en með svívirðingum um síðuhöfund, aðila þess máls, sem til umræðu er, hverju sinni eða með uppnefningum, er bent á eigin bloggsíðu.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband