Leita í fréttum mbl.is

Að mæla með sölu á sjálfum sér...

"Sala á eignarhlut ríkisins í Arion banka og Íslandsbanka dugir skammt til þess að létta á skuldabyrðinni, en með því að selja einnig af 30% hlut ríkisins í Landsbankanum mætti lækka skuldir ríkisins um u.þ.b. 100 ma. kr. Ætla má að lífeyrissjóðir myndu eignast verulegan hluta þessara eigna þannig að þessir hlutir yrðu áfram í sameiginlegri eign þjóðarinnar,“ segir enn fremur í ritinu."

Það er kannski soldið spes að banki "mæli" með sölu á sjálfum sér og um leið bendi á vænlegan kaupanda. 

Afhverju „mælir“ bankinn þá með sölu á stærri hlut af sér?  Enda hlyti slíkt að lækka skuldir ríkissjóðs enn frekar.

Það hefur nú varla verið hægt að tala um Landsbankann sem sameiginlega eign þjóðarinnar. Samkvæmt lögum um Bankasýslu ríkisins, þá er ábyrgð á rekstri bankans í raun og veru velt yfir á einstaklinga sem að þjóðin (eigandinn) fær engu um ráðið hverjir eru. Þó svo að pólitíska ábyrgðin hvíli þó ætíð á fjármálaráðherra hvers tíma.

Bankinn er bara réttur og sléttur ríkisbanki. Rekinn af fólki sem að meintur „eigandi“ fær engu um ráðið hvert er.  Meintur „eigandi“, þjóðin,  ræður engu um stefnu bankans eða markmið..

Allt tal um sameiginlega þjóðareign er ekkert annað en misheppnuð fegrunnartilraun á fyrirbærinu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristinn Karl Brynjarsson
Kristinn Karl Brynjarsson
Ég hef mínar skoðanir, ekki endilega alltaf réttar.  Málefnaleg innlegg velkomin, en þeim sem geta ekki tjáð sig öðruvísi, en með svívirðingum um síðuhöfund, aðila þess máls, sem til umræðu er, hverju sinni eða með uppnefningum, er bent á eigin bloggsíðu.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 1591

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband