Leita í fréttum mbl.is

Nýtt sameiningartákn vinstri manna.

Síðan að Brynjar Níelsson  fór að láta að sér kveða með pistlum sínum á Pressunni, má segja að vinstri fólk á Íslandi hafi loksins fundið eitthvað til þess að sameinast um, án þess að allt endi í innbyrðis skærum og skætingi. Það er að snúa út úr öllu sem Brynjar segir og skrifar.

Nokkuð breið sátt er um snúa út úr nýjasta  pistli Brynjars með því spyrja hvað Brynjar telji "ónauðsynlega heilbrigðisþjónustu". Úr því að hann skrifar að engum á Íslandi detti í hug að einkavæða nauðsynlega heilbrigðisþjónustu.

Ef að þetta fólk væri ekki svona upptekið við að snúa út úr því sem Brynjar skrifar, þá myndi það líklegast (og þó) átta sig á því að það sem Brynjar á við er að engum á Íslandi detti í hug að einkavæða heilbrigðisþjónustuna. Vegna þess að hún er þjóðinni nauðsynleg.

Hins vegar ljá Brynjar og reyndar fleiri máls á því, að skoða megi hvort ekki sé möguleiki á því að einkaaðilar geti framkvæmt einstaka aðgerðir eða rekið heilsugæslu á hagkvæmari hátt en hið opinbera.

Það vita það allir sem vilja vita að slíkt er ekki einkavæðing. Enda er ríkið ekki að afsala sér eða selja nokkrum skapaðan  hlut.   Heldur er það að leita til þess að kaupa heilbrigðisþjónustu fyrir borgaranna, á hagstæðara verði en þjónustuaðilar á vegum ríkisins geta boðið.

Rikið semsagt semur við þann sem tekur það aðs sér sem samið er um. Innifalið í þeim samningi er föst tala um kostnað ríkisins og hluta sjúklings.

Væri hins vegar einhver þáttur heilbrigðisþjónustunnar einkavæddur, þá myndi sá sem tæki við þeim þætti þjónustunnar, greiða ríkinu fyrir að hætta  að stunda þessa þjónustu. Líklegast myndi hann einnig kaupa af ríkinu þau tól og tæki sem það á til verksins og það húsnæði sem ríkð hafði undir þessa starfsemi.  Svo hann sitji nú örugglega  einn að þessu verkefni .    Ásamt því að hann  hefði þá fullan rétt á því að ákveða sjálfur, á hvaða verði hann seldi sína þjónustu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þakka þér fyrir þetta Kristinn Karl. Þú ert málefnalegur og hógvær eins og ævinlega. Nú hefur þú valið þér ærið erfitt verkefni sem er að útskýra skrif Brynjars lögmanns. Brynjar hefur ákveðinn stíl og ákveðin markmið.Hann æsir andstæðinga sína með marklausu, samhengislausu rugli og gífuryrðum. Þannig tekst honum stundum að fá umræðuna til að snúast um sig og sínar skoðanir. Markmið er að ná aðhygli, markaðsetja sig í þingmann og stjórnmálamann. Orðafar lögmannsins er mótsagnakennt og sérkennilegt. Mótmælendur fyrir framan stjórnarráðið verða að blóðþyrstum hýenum. Í nýlegum pistli kom í ljós að lögmaðurinn kann ekki að reikna. Hann sagði nýlega að enginn vildi einkavæða nauðsynlega heilbrigðisþjónustu sem rökrænt þýðir að einhver hluti er ónauðsynlegur.(mér dettur helst í hug að hann hafi átt við fegrunaraðgerðir). Ef Brynjar hefði sagt : engum dettur í hug að einkavæða heilbrigðisþjónustuna enda er hún öll nauðssynleg, þá hefði skoðun hans legið fyrir. Brynjar getur auðvitað ekki verið sameiningartákn, eins og þú veist mætavel sjálfur. Hann getur hins vegar skotskífa en hann verður það ekki lengi. 'i haust tekur alvara lífsins við ;)

Hrafn Arnarson (IP-tala skráð) 24.7.2013 kl. 07:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristinn Karl Brynjarsson
Kristinn Karl Brynjarsson
Ég hef mínar skoðanir, ekki endilega alltaf réttar.  Málefnaleg innlegg velkomin, en þeim sem geta ekki tjáð sig öðruvísi, en með svívirðingum um síðuhöfund, aðila þess máls, sem til umræðu er, hverju sinni eða með uppnefningum, er bent á eigin bloggsíðu.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband