Leita í fréttum mbl.is

Enn ver Steingrímur J. Icesavesamninga Svavars og Indriða.

Steingrímur J. ver stefnu sína í Icesave í Kastljóssþætti kvöldsins,  með því vísa í eignir þrotabús Landsbankans.

Flestir ef ekki allir og þar með talið hann,   vita þó.

Að þrotabúinu var og er eingöngu ætlað að standa undir innistæðum Icesavereikninganna. Vextir þeir sem Svavar og Indriði sömdu um, voru þar fyrir utan.

Í dag væri staðan sú, ef þessir Icesavesamningar sem Steingrímur J. ver, hefðu verið samþykktir. Að íslenska ríkið væri  búið að leggja út nærri 150 milljarða í vexti í gjaldeyri sem fenginn er að láni og væri rétt að byrja. 

Eins má geta þess að hefðu Svavarssamningarnir verið samþykktir óbreyttir. Eins og til stóð.  Þá væri auðlindaákvæði í stjórnarskrá, bara upp á punt. Enda heimiluðu þeir samningar veðsetningu á landinu og miðunum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Fella niður ólöglega gengistryggða lán nýja Landsbankans.

Guðmundur Ásgeirsson, 19.2.2013 kl. 04:00

2 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

XD þarf ekki að auglýsa fyrir næstu kosningar, VG & Samfó eru búin að vera að stunda það undanfarin 4 ár.

Alveg magnaður andskoti...

Enn merkilegra: við höfum alveg fullkomið landráðakeis á þau öll. Út af æseiv - Svavarssamningnum sérstaklega - Af hverju hefur enginn kært neitt þeirra enn?

Ásgrímur Hartmannsson, 19.2.2013 kl. 09:40

3 Smámynd: Óskar

Enn er reynt að forðast sannleikann.  Hann er ekki til hjá sjallarusli.  Icesave byrjaði EKKI með svavarssamningnum.  Afhverju vilja sjallar ekkert kannast við samninganefndina sem fór út á vegum Árna Matt og kom heim með drög að samningi uppá 7,25% vexti og byrja að borga strax ?  þarna voru eðalkunnir sjallar á ferð undir stjórn Baldurs fanga. Glæpur Svavars var að reyna að semja vextina og ruglið niður frá þessari hörmung sjallanna.  Það tókst honum en síðan tókst áróðursmeisturum sjallaruslsins að haga málum þannig að allt í einu byrjaði Icesave með Svavarssamningnum og fortíðinni sem ekki hentaði þeim var hent!  Alveg ótrúlega óforskammap pakk.

Óskar, 19.2.2013 kl. 12:24

4 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Óskar, minnispunktar, skráðir á fyrsta samningafundi um kröfur viðsemjandans, er ekki samningur.  Þetta vita allir sem hafa komið nálægt viðskiptum.

Glæpur Svavars var að hafa ekki hundsvit á því hvernig samningaviðræður ganga fyrir sig. 

Glæpur Steingríms var að ráða slíkan mann til forystu. 

Glæpur Indriða, sem kunni þó að lesa úr tölum, var að gera eins og honum var sagt.

Þegar upp er staðið, er glæpur Steingríms stærstur - því hans var ábyrgðin.

Óforskammað pakk?  

Kolbrún Hilmars, 19.2.2013 kl. 17:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristinn Karl Brynjarsson
Kristinn Karl Brynjarsson
Ég hef mínar skoðanir, ekki endilega alltaf réttar.  Málefnaleg innlegg velkomin, en þeim sem geta ekki tjáð sig öðruvísi, en með svívirðingum um síðuhöfund, aðila þess máls, sem til umræðu er, hverju sinni eða með uppnefningum, er bent á eigin bloggsíðu.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband