Leita í fréttum mbl.is

Fréttablaðið ver umboðsleysi Árna Páls með fúski

Í Fréttablaðinu í dag má lesa einhverja aumustu vörn fyrir raunverulegu umboðsleysi nýkjörins formanns Samfylkingarinnar.

Í daglegum dálki blaðsins, Frá degi til dags, rekur blaðamaðurinn Stígur@frettabladid.is ýmsar ástæður fyrir því að Árni Páll Árnason setjist ekki í ríkisstjórn þessar vikur sem eru til kosninga.

Flestar þeirra ástæðna benda hins vegar til þess að Árni Páll hafi ekki umboð  þingflokksins, til annars en að vera formaður í starfskynningu fram að þingrofi. 

Niðurlag dálksins er þó með því aumasta sem sést hefur lengi og í rauninni með ólíkindum að  slíkt komist í prentútgáfu dagblaðs sem að öllum líkindum vill láta taka sig alvarlega.

En þar segir:

"Tvö nýjustu dæmin

Þessi staða er óvenjuleg - að formaður stjórnarflokks gegni ekki ráðherraembætti. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hætti sem ráðherra í mars 2009 en var þó formaður í Samfylkingunni að nafninu til í tuttugu daga. Þar á undan reiknast mönnum til að leita þurfi 22 ár aftur í tímann - til vormánaða ársins 1991 - eftir næsta dæmi. Þá var Davíð Oddsson formaður Sjálfstæðisflokksins í hálfan annan mánuð fram að kosningum og var ekki ráðherra á meðan. (Stigur@frettabladid.is)"


Ingibjörg Sólrún  hætti reyndar sem ráðherra 1.feb. 2009 og sagði af sér formennsku í Samfylkingunni um leið og hvarf úr pólitík. Eru til einhver dæmi þess í sögunni að manneskja sem hættir í pólitík, taki um leið sæti í ríkisstjórn?

Svo held ég að allir átti sig á því að Davíð Oddsson hefur varla haft nokkurn áhuga á því að sitja í ríkisstjórn Framsóknar, Alþýðubandalags, Alþýðuflokks og Borgaraflokks.

Er það nokkuð frekja að biðja um aðeins vandaðri vinnubrögð blaðamanna? Jafnvel þó að þeir séu kannski leynt og ljóst að verja þá staðreynd að Árni Páll Árnason verður bara formaður í starfskynningu fram að þingrofi. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristinn Karl Brynjarsson
Kristinn Karl Brynjarsson
Ég hef mínar skoðanir, ekki endilega alltaf réttar.  Málefnaleg innlegg velkomin, en þeim sem geta ekki tjáð sig öðruvísi, en með svívirðingum um síðuhöfund, aðila þess máls, sem til umræðu er, hverju sinni eða með uppnefningum, er bent á eigin bloggsíðu.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband