Leita í fréttum mbl.is

Falskur tónn lögmannsins.

Yðar einlægur telur að ekki sé það í rauninni verðtryggingin sem fari hvað mest fyrir brjóstið á Sigurði G. Guðjónssyni lögmanni.  Heldur líti það betur út að nefna hana til sögunnar, heldur en raunverulega ástæðu þess að Sigurður ræðst gegn Vilhjálmi með þessum hætti.

Vilhjálmur hefur  fyrir hönd Samtaka fjárfesta barist fyrir því að félagar í þeim samtökum og almenningur öðlist eitthvað réttlæti gagnvart genginu er setti bankanna hér á hausinn.  

Það er einmitt það gengi sem skaffar Sigurði aur fyrir salti í grautinn.  Enda er hann sjaldnast fjarri þegar einhver þeirra mætir í réttarsal.

Sigurði væri nær, sé afnám verðtryggingar honun svona mikið hjartans mál, að stökkva á vagninn með þeim félagasamtökum, sem hyggjast fá henni hnekt með dómi.    Frekar en að ráðast að Vilhjálmi með þessum hætti.  Þó svo að slíkar árásir séu ær og kýr umbjóðenda hans.  


mbl.is „Þjóðin þarf ekki Villa verðtryggingu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég stórefa að Vilhjálmur sé nú að hafa áhyggur af almeningi, hann er ekkert betri en aðrir fjárfestar, skúrkur sem fyrst og fremst hugsar um að markfalda sinn auð og sama hvort að hinir efnaminni blæði, þannig virðiast allt þetta fjárfestalið hugsa.

Ég hef þó enga skoðun á lögmanninum og eflaust getur verið að hann sé að verja aðra skúrka

siggi (IP-tala skráð) 11.11.2012 kl. 13:33

2 Smámynd: Landfari

Á hvaða forsendum byggir þú þessa skoðun þína siggi?

Hvað hefur Vilhjálmur gert til að verðskulda þessa afstöðu þína?

Landfari, 11.11.2012 kl. 14:17

3 Smámynd: Guðmundur Pétursson

Einn spilltasti lögmaður landsins að tala um hluti sem hann hefur ekki hundsvit á. Gaman að þessu:-) Hann toppaði þegar hann fór að grenja þegar hann var rekinn hjá stöð 2, síðan hefur þetta allt verið down-hill hjá garminum.

Guðmundur Pétursson, 11.11.2012 kl. 15:18

4 identicon

Hvað sem öðru líður. Almúginn MUN kjósa gegn verðgtryggingu í vor. Þess vegna væri skynsamlegar fyrir alla gömlu flokkana, að stíga skrefið og leiðrétta grunn verðtryggingar STRAX! Annars verða þeir rústir einar - og svo sem ekki efiti neinu að sjá!

Gamlinginn (IP-tala skráð) 11.11.2012 kl. 15:52

5 identicon

Hvernig heldur fólk að óverðtryggðir vextir séu uppbyggðir

Að sjálsögðu setur bankinn áætlaða verðbólgu þar inn. hagnarprósentu og svo framvegis

Þrátt fyrir að vera með verðtryggt lán þá held ég að best væri að setja þak á hvað " höfuðstóllinn gæti hækkað á ári t.d 4% " og síðan að verðbótaþátturinn yrði bara settur inn 2 á ári

sæmundur (IP-tala skráð) 11.11.2012 kl. 23:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristinn Karl Brynjarsson
Kristinn Karl Brynjarsson
Ég hef mínar skoðanir, ekki endilega alltaf réttar.  Málefnaleg innlegg velkomin, en þeim sem geta ekki tjáð sig öðruvísi, en með svívirðingum um síðuhöfund, aðila þess máls, sem til umræðu er, hverju sinni eða með uppnefningum, er bent á eigin bloggsíðu.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 1591

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband