Leita í fréttum mbl.is

Guðmóðir jafnréttismála kveður sviðið.

Í stjórnarandstöðu var Jóhanna einhver harðast talsmaður jafnréttis á Íslandi og lét öllum illum látum ef jafnréttislögin voru brotin.  Hún krafðist jafnan afsagnar þess er þau braut.  Enda ráðherra vart vært í embætti sínu með lögbrot á bakinu.

Einnig fannst henni það frekar klént að niðurskurður  Kærunefndar jafnréttismála, væri bara ráðgefandi en ekki bindandi.  Enda hefur ráðgefandi niðurstaða, litlar sem engar afleiðingar í för með sér.   Til þess að gera slíka niðurstöðu bindandi þurfti að reka dómsmál og án þess að reka slíkt mál, voru vonir þess er brotið var á,  um bætur harla litlar.

Jóhanna réðst því í þá vinnu, hún varð félagsmálaráðherra 2007, að breyta jafnréttislöggjöfinni á þann hátt t.d. að niðurstöður Kærunefndarinnar yrðu bindandi og þeim ekki hægt að hnekkja nema með dómsmáli.  Við niðurstöðu kærunefndarinnar yrði þá sá brotlegi að greiða þeim er brotið væri á lágmarksbætur.  Ella fá niðurstöðunni hnekkt fyrir dómstólum og eiga þá jafnvel á hættu að vera dæmdur til þess að greiða enn hærri bætur, fallist dómstólinn ekki á það að hnekkja niðurstöðunni.

Var góður og mikill rómur gerður af lögum Jóhönnu og var henni hampað sem  Guðmóður jafnréttismála á Íslandi.  Það fór nú samt svo, að sem forsætisráðherra, var Jóhanna fyrst til þess að brjóta eigin lög.  Það breytir þeirri staðreynd í engu, þó svo að um svokallað ,,faglegt“ ráðningarferli hafi verið að ræða, er brotið var framið.

Í dag nokkrum klukkustundum áður en hún tilkynnti um brotthvarf sitt úr stjórnmálum, talaði hún svo fyrir breytingum á jafnréttislöggjöfinni.  Enda telur hún það sjálfsagt fáum það fært að fara að þeirri löggjöf, fyrst hún gat það ekki sjálf.

Breytingarnar eiga helst að ganga út á það, að hæfnisnefnd við ráðningar, sem hefur í rauninni ekkert lögformlegt gildi, heldur er ætlað  að gera huglægt mat á hæfni umsækjenda og Kærunefnd jafnréttismála, samræmi vinnubrögð sín og viðmið.

Slík lagabreytinga er þó með öllu óþörf. Nóg ætti að vera að setja hæfnisnefndum framtíðarinnar þau skilyrði í skipunarbréfi til þeirra, að fara að þeim lögum er varðar ráðningar forstöðumanna hjá hinu opinbera.  Hvort sem um er að ræða,  lögformlegt hæfnismat á umsækjendum eða jafnréttislögin.  Til þess þarf engar lagabreytingar.  Aðeins að skrifa skipunarbréfið.

Nema auðvitað að til standi að lögfesta huglægt mat á umsækjendum, þar sem geðþóttaákvarðanir hæfnisnefndarinnar og /eða ráðherrans, geti ráðið úrslitum og verið  jafnvel æðri jafnréttislöggjöfinni.

Hvað ætli stjórnarandstæðingurinn Jóhanna Sigurðardóttir hefði sagt um slíka löggjöf?


mbl.is Jóhanna ætlar að hætta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Gott að losna við hana farið hefur fé betra!

Sigurður Haraldsson, 27.9.2012 kl. 23:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristinn Karl Brynjarsson
Kristinn Karl Brynjarsson
Ég hef mínar skoðanir, ekki endilega alltaf réttar.  Málefnaleg innlegg velkomin, en þeim sem geta ekki tjáð sig öðruvísi, en með svívirðingum um síðuhöfund, aðila þess máls, sem til umræðu er, hverju sinni eða með uppnefningum, er bent á eigin bloggsíðu.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 1620

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband