Leita í fréttum mbl.is

Upplýsingafulltrúi, rangt starfsheiti?

Það hlýtur að teljast merkilegt yfir meðallagi, að stjórnvald (ríkisstjórn) beiti sér fyrir slíkum lagabreytingum, að ráða megi upplýsingafulltrúa ríkisstjórnar með sama hætti og aðstoðarmenn ráðherra eru ráðnir.

Það telst hins vegar fáranlegt og í algjöru ósamræmi við stefnu stjórnar, sem hefur opna og gagnsæja stjórnsýslu að leiðarljósi og segist vilja upplýsta umræðu í þjóðfélaginu, um þau mál sem efst eru á baugi hverju sinni.

En líklega þarf að gera meira en gott þykir, til þess að hægt sé að ráða ,,upplýsingafulltrúa" við hæfi. 

 Ráða má af framgöngu Jóhanns Haukssonar, t.d. í Icesave-málinu, að þar fari maður sem taki málstaðinn fram yfir staðreyndir máls.  En opin og upplýst umræða byggist jú á staðreyndum máls, en ekki á málstað þess sem fyrir henni stendur.

  Spyrja má að ofansögðu, hvort upplýsingafulltrúi sé í rauninni rétt starfsheiti? Enda hefur sú upplýsingamiðlun sem Jóhann hefur stundað af gríðarlegri ,,sannleiksást", oftar en ekki verið áróður fyrir málstað, einhverra hagsmunahópa eða stjórnvalda,  klæddur skikkju óháðrar og hlutlausrar blaðamennsku.

Kannski væri  bara réttast að kalla embætti Jóhanns áróðursmálaráðherra/fulltrúa ríkisstjórnarinnar.
Áróðursmálaráðherra líkt og ríkisstjórnir ákveðinna stefna og isma, sem ég nefni ekki til þess að komast hjá ákæru, hafa gjarnan á sínum snærum.


mbl.is Nýr upplýsingafulltrúi stjórnarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Honum vafðist oft tunga um tönn í dag þegar hann var að ræða þetta, greinilega næstum því skömmustulegur.   Það væri gaman að frá greiningu á þessu viðtali af sérfræðingi.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.1.2012 kl. 23:02

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Jóhann var lengi í þjónustu Baugsveldisins. Til að bæta gráu ofan á svart gerðist hann eindreginn málsvari Icesave-klafans á Íslendinga (Icesave-I hefði þegar kostað okkur yfir 120 milljraða króna í VEXTI í erlendum gjaldeyri og þær fjáræðir ÓENDURKRÆFAR, af því að vaxtakröfur í þrotabú eru ekki meðal forgangskrafna. Féð væri tapað.) Sem betur fer var minnst hlustað á menn eins og Jóhann í þjóðaratkvæðagreiðslunum, og frægt er það atvik úr Bessastaðastofu þegar forsetinn stakk upp í þennan framhleypna blaðamann með eftirminnilegum hætti.

Jón Valur Jensson, 27.1.2012 kl. 08:18

3 Smámynd: Jón Valur Jensson

Og góður var pistill þinn, Kristinn Karl. Kærar þakkir.

Takið líka eftir, að fyrir tveimur árum var auglýst embætti blaðafulltrúa forsætisráðuneytisins. Tugir manna sóttu um, en síðan var HÆTT VIÐ að stofna til starfsins. Hefur Jóhanna Sig. eflaust átt erfitt með að ganga þar fram hjá mun hæfari mönnum en Jóhanni. Nú er því gripið til þess ráðs að auglýsa starf "blaðafulltrúa ríkisstjírnarinnar" og gera það ÁN AUGLÝSINGAR, þvert gegn lögum! –Já, Jóhanna Sig. hugsar um sig!

Baldur Hermannsson var með þetta viðbragð á Facebók sinni (orðrétt skv. Fréttatímanum í dag, s. 24): "Æ hvað þetta er eitthvað vinalegt. Gamli baugspenninn kominn heim í dalakofann. Nú getur hann fengist við það sem honum lætur best: áróður í formi upplýsinga."

PS. 120 milljarða klafinn hefði reynzt okkur gríðarleg efnahagsáraun, leitt til fjöldabrottrekstrar ríkisstarfsmanna, óvægins niðurskurðar í skólakerfi, heilbrigðisþjónustu og framkvæmdum ríkisins og skattaáþjánar alþýðu.

Jón Valur Jensson, 27.1.2012 kl. 09:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristinn Karl Brynjarsson
Kristinn Karl Brynjarsson
Ég hef mínar skoðanir, ekki endilega alltaf réttar.  Málefnaleg innlegg velkomin, en þeim sem geta ekki tjáð sig öðruvísi, en með svívirðingum um síðuhöfund, aðila þess máls, sem til umræðu er, hverju sinni eða með uppnefningum, er bent á eigin bloggsíðu.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 1610

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband