Leita í fréttum mbl.is

Féll borgarafundurinn í Háskólabíói niður???

Í kvöld kl . 20:00 var haldinn, að öllum líkindum, borgarafundur í Háskólabíói um skuldavanda heimilana og að mörgu leiti miskunnarlausa herferð kröfuhafa bankana, lífeyrissjóðana og Íbúðalánasjóð, gegn þeim heimilum er illa fóru út úr bankahruninu, er varð hér í október 2008.  Undirritaður átti ekki heimangengt, en sætti sig þó við, að geta séð frétt af fundinum eða um fundinn í seinni fréttum sjónvarps.

Seinni fréttir sjónvarps liðu hjá, en ekki minnst á fundinn einu orði í sjónvarpi allra landsmanna.

Í kjölfar bankahrunsins , haustið 2008, voru haldnir borgarafundir einu sinni í viku, fyrst í Iðnó og síðar í Háskólabíói.  Á þeim tíma þóttu þessir fundir það stórmerkilegir að nánast var talið inn á þá, í aðalfréttatíma sjónvarps og í Kastljósþætti þeim er kom í kjölfar fréttanna.

Ekkert var sagt frá fundinum í aðalfréttatímanum og ekki Kastljósinu heldur. 

Maður getur nú alveg skilið Kastljósið, enda fyrirbæri er kallast ,,hártattú" og björgun eins umsjónarmanns Kastljósins, mun merkilegra viðfangsefni en áðurnefndur fyundur. :-)

En kannski er það nú bara svo, að þegar hópur einstaklinga sér sig knúinn til þess að leigja stærsta bíósal landsins undir fund um þau málefni er þar voru rædd, þá þyki slíkt ekki fréttnæmt.

Það þykir kannski bara eðlilegt og hið besta mál, hvernig ástandið í þjóðfélaginu er og alger óþarfi að splæsa á viðburð eins og borgarafund, fréttamanni með tökumann meðferðis?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heill og sæll; Kristinn Karl !

Jú; fundurinn fór fram - með hinum mestu ágætum, við vorum 3 samferða; héðan austan úr Árnessýlu, og sýndist okkur tiltölulega eindregin samheldni, þeirra Hundraða fundarmanna, sem saman voru komnir, í Háskóla Filmsýngarhúsi (Háskólabíói).

Auðvitað; er löngu kominn tími á, viðlíka aðgerðir - á samskonar hlutum, og Túnismenn - Egyptar - Líbýumenn og fleirri hafa iðkað, gagnvart valdastéttunum, þar syðra - og eystra, ágæti drengur.

Nógsamlega komið; af Helvízkri lognmollunni, hér á Ísafoldu, Kristinn Karl. 

Með beztu kveðjum; af utanverðu Suðurlandi /

Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 27.9.2011 kl. 01:00

2 identicon

Er ekki bara komin skjálfti í stjórnvöld og þau nýta sér það að hafa ráðandi fólk í ruv í vasanum, en ég held að þegar boltinn fer að rúlla þá muni þau ekki ná að standa gegn þjóðinni þau muni hrejast á brott.

Kristján B Kristinsson (IP-tala skráð) 27.9.2011 kl. 07:00

3 Smámynd: Viggó Jörgensson

Ríkisútvarpið er útvarp ríkisstjórnarinnar.

Ekki þjóðarinnar. 

Viggó Jörgensson, 27.9.2011 kl. 14:28

4 identicon

Þarna eru sammála núverandi stjórn og stjórnarandstaða: að segja ekki frá því þegar verið er að upplýsa um lána-svika-þjófnaðinn. Og fræða almenning um lögleysuna. Hefðbundnir fjölmiðlar upplýsa fólk ekki um þessi mál. Enda í eigu LÍU og JónsÁsgeirs og báðir þessir aðilar vilja óbreytt ástand og eru sammála um að láta almenning blæða.

Rósa Halldórsdóttir (IP-tala skráð) 27.9.2011 kl. 20:45

5 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Stundum verður maður gersamlega orðlaus af óskammfeilninni sem birtist í fréttamati fjölmiðlanna og því hversu skipulega þeir sniðganga alla þá vitsmuni, hugmyndaflug og óeigingirni sem hefur birts í viðspyrnunni. Maður fyllist reyndar fyrirlitningu yfir sumum fréttum sem rata inn á síður þeirra og rásir í staðinn!

Rakel Sigurgeirsdóttir, 27.9.2011 kl. 23:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristinn Karl Brynjarsson
Kristinn Karl Brynjarsson
Ég hef mínar skoðanir, ekki endilega alltaf réttar.  Málefnaleg innlegg velkomin, en þeim sem geta ekki tjáð sig öðruvísi, en með svívirðingum um síðuhöfund, aðila þess máls, sem til umræðu er, hverju sinni eða með uppnefningum, er bent á eigin bloggsíðu.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 1591

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband