Leita í fréttum mbl.is

Hjáleið framhjá Jóni Bjarnasyni.

Það hefur nánast verið á dagskrá síðan hin ,,hreina" vinstri stjórn tók við völdum, að koma Jóni Bjarnasyni út úr Sjávarútvegs og landbúnaðarráðuneytinu. Það hefur hins vegar ekki tekist hingað til og mun ekki takast nema þá með því að sprengja stjórnina. 

Hins vegar er það með öllu ótækt að mati Samfylkingarhluta ríkisstjórnarinnar að Jón Bjarnason, sé í forsvari gagnvart ESB í sjávarútvegs og landbúnaðarmálum.  Enda fór það svo, fyrir ekki svo löngu, að Össur þurfti að umskrifa svör Jóns B. við spurningum ESB um sjávarútvegs og landbúnaðarmál. 

Verði stjórnarráðsfrumvarp Jóhönnu að lögum, þá þurfa ESBsinnaðir ráðherrar ekkert að hafa neinar áhyggjur af því hvað eða hvort Jón B. skrifi eitthvað til ESB.  Frumvarpið gerir nefnilega ráð fyrir því að forsætisráðherra, geti flutt málaflokka á milli ráðuneyta. 

Það er því nokkuð augljóst að verði frumvarpið að lögum, þá færist forræðið á sjávarútvegs og landbúnaðarmálum, gagnvart ESB á hendi utanríkisráðherra.  Með því verður þá búið að ryðja hjáleið framhjá Jóni Bjarnasyni sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra. 


mbl.is Ekki boðlegt í sölum Alþingis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Samt sem áður hef ég trú á því að það muni sprengja þessa ríkisstjórn.  Það þarf ekki nema Jón Bjarnason til þess því það þarf bara eitt atkvæð, og svo gæti verið að Guðfríður Lilja og jafnvel fleiri VG stæðu með sínum manni.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.5.2011 kl. 00:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristinn Karl Brynjarsson
Kristinn Karl Brynjarsson
Ég hef mínar skoðanir, ekki endilega alltaf réttar.  Málefnaleg innlegg velkomin, en þeim sem geta ekki tjáð sig öðruvísi, en með svívirðingum um síðuhöfund, aðila þess máls, sem til umræðu er, hverju sinni eða með uppnefningum, er bent á eigin bloggsíðu.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 1615

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband