Leita í fréttum mbl.is

Af tveimur réttum kostum tókst stjórnvöldum að velja þann þriðja og rangan.

Það var bara í rauninni, tvennt mögulegt í stöðunni og hvorugt lét ríkisstjórnin nefndina ákveða. Annað hvort var að kjósa aftur, eða hætta við. Stjórnlaganefndin sem vinnur að eða vann að ,,beinagrind, nýrrar stjórnarskrár gæti svo skilað Alþingi niðurstöðu vinnu sinnar þegar henni líkur og þingið skellt einhverju kjöti utan á þá beinagrind, þar til fyrir lægi ný stjórnarskrá eða breyting á þeirri gömlu.


 Ef að satt reynist að Alþingi geti ekki komið sér saman um nýja stjórnarskrá, þá breytir stjórnlagaþing/ráð engu þar um, því það verða á endanum 63 Alþingismenn, sem fjalla munu um tillögu að nýrri stjórnarskrá, efnislega í þremur umræðum, með nefndarfundum á milli. Siðan greiða þingmenn atkvæði um nýja stjórnarskrá, samkvæmt eigin samvisku, fari þingmenn eftir núgildandi stjórnarskrá.

 Aumur væri  sá þingmaður, sem greiddi einhverri stjórnarskrá atkvæði sitt, gegn samvisku sinni, bara af því að eitthvað stjórnlagaþing/ráð, lagði hana fram.


mbl.is Ekki kosið til stjórnlagaþings
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: KRISTJÁN SVEINBJÖRNSSON

Hárrett niðurstaða hjá Alþingi enda vildi almenningur þessa leið. Þrátt fyrir margar tilraunir þá hefur alþingismönnum ekki tekist að endurskoða stjórnarskrána vegna flokkshagsmuna. Hef trú á þessum hópi sem þjóðin kaus sér þó hinn umdeildi hæstirettur reyndi að eyðileggja kosninguna. Ósýnilegir hagsmunir liggja víða. 

KRISTJÁN SVEINBJÖRNSSON, 24.2.2011 kl. 18:36

2 Smámynd: Árni Gunnarsson

Snilldarlausn!

Árni Gunnarsson, 24.2.2011 kl. 19:43

3 Smámynd: Kristinn Karl Brynjarsson

Lausnir miða oftast að því að leysa mál, en þetta gerir það í rauninni ekki.

 ,,Ef að satt reynist að Alþingi geti ekki komið sér saman um nýja stjórnarskrá, þá breytir stjórnlagaþing/ráð engu þar um, því það verða á endanum 63 Alþingismenn, sem fjalla munu um tillögu að nýrri stjórnarskrá, efnislega í þremur umræðum, með nefndarfundum á milli. Siðan greiða þingmenn atkvæði um nýja stjórnarskrá, samkvæmt eigin samvisku, fari þingmenn eftir núgildandi stjórnarskrá."

 En haldi fólk að Alþingi samþykki, án umræðu og breytinga frumvarp stjórnlagaráðsins, þá er þetta væntanlega ,,lausn".   

Kristinn Karl Brynjarsson, 24.2.2011 kl. 20:54

4 Smámynd: Vendetta

"Hárrett niðurstaða hjá Alþingi enda vildi almenningur þessa leið."

Rangt.

Vendetta, 25.2.2011 kl. 00:15

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég er nú fyrst og fremst að velta því fyrir mér hvort þessi "ákvörðun" standist lög og þá stjórnarskrá sem við búum við??  Ef þetta stenst, þá hefur ríkisstjórnin heimild til þess að ráða sér ótalinn fjölda "ráðgjafa" án þess að spyrja kóng eða prest.

Jóhann Elíasson, 25.2.2011 kl. 11:09

6 identicon

"Hárrett niðurstaða hjá Alþingi enda vildi almenningur þessa leið."

 ÖÖÖ mér sýnist nú kosningaþáttaka sýna svart á hvítu að ALmenningur hafði engan áhuga á þessari leið.

stebbi (IP-tala skráð) 25.2.2011 kl. 11:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristinn Karl Brynjarsson
Kristinn Karl Brynjarsson
Ég hef mínar skoðanir, ekki endilega alltaf réttar.  Málefnaleg innlegg velkomin, en þeim sem geta ekki tjáð sig öðruvísi, en með svívirðingum um síðuhöfund, aðila þess máls, sem til umræðu er, hverju sinni eða með uppnefningum, er bent á eigin bloggsíðu.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband