Leita í fréttum mbl.is

Flokksræðið falið, með ,,samráðsleiktjöldunum".

Í Kastljósinu vísaði Steingrímur því á bug, að hann hefði haft upp einhverja flokksræðis eða foringjaræðistilburði í fjárlagavinnunni.  Líklegast hefðu aldrei jafnmargir ,,samráðshópar" verið myndaðir og málin sjaldnast rædd eins mikið í þaula og nú við þessi fjárlög og fjárlögin í fyrra.

Það má vel vera, að meira hafi verið talað og fundað, en áður í undirbúningi þess að fjárlögin voru lögð fram.  En í þessu máli líkt öllum þeim sem stjórnarflokkarnir hafa kallað eftir og/eða sagst vera í samráði við einhverja vegna, þá fer nú oftast nær svo, að fyrirfram ákveðin stefna stjórnvalda, verður ofan á. 

Enda eru ,,samráðstilburðir" Norrænu velferðarstjórnarinnar, meira til þess gerðir að drepa málum á dreif, frekar en að ná sátt í málum. ,,Samráðtilburðirnir eiga í rauninni frekar heima í íslenskum leikbókmenntum, fremur en í íslenskri stjórnmálasögu. Þvílíkir vilja oft leikrænir tilburðir Skjaldborgarflokksins verða

Nú um stundir er samráðið þvílíkt innan raða Vinstri grænna, að senda verður Steingrímssnatann Árna Sigurðsson á fundi í fjárlaganefnd Alþingis, i stað Ásmundar Daða Einarssonar, svo svokallaður ,,stjórnarmeirihluti" í nefndinni, skili af sér í takt við stefnu ríkisstjórnarinnar.

 En svo er það líka spurningin, hvort Steingrímur sýti þetta uppþot þremenningana? Það er jú þannig, að flokkur sem gengur jafn gróflega, gegn sínum stefnumálum og loforðum og Vg. þarf virkilega á því að halda að einhverjir taki það að sér að vera með uppþot innan flokksins, þegar líklegt þykir að grasrót flokksins, sé ósátt við kúvendingu forystunnar í einhverju af stefnumálum flokksins.

 


mbl.is Visst áfall segir Steingrímur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

"Þistilfjarðarkúvendingurinn" hefur sennilega setið lengur á þingi en hollt getur talist. Það getur engum manni verið hollt að sitja á þingi svona lengi og skiptir þá engu hvar í flokki menn og konur standa. Þá loks völdin duttu í kjöltu hans, ruku allar hugsjónir og stefnur fyrir róða fyrir valdastól. Undarlegt að hann skuli vera "sár" út í það fólk síns eigin flokks, sem enn stendur og fellur með hugsjónum sínum og upphaflegum forsendum og stefnu Vinstri Grænna, sem var nú barasta alveg þokkaleg á sínum tíma. Ekki það að ég vilji ætla Steingrími annað en að hann sé að vinna samkvæmt sinni bestu bjargföstu sannfæringu. Tæplega þriggja áratuga þingsetudoði, án nokkurra valda er einfaldlega flestum um megn, þá loks þeir komast til metorða. Spurning hvort hægt sé að fjarlægjast uppruna sinn meira en þetta, með valdaglampann brennandi í augum. Dapurlegur endir á pólitískum ferli og trauðla til eftirbreytni stjórnmálaforingjum framtíðarinnar. Góðar stundir. 

Halldór Egill Guðnason, 17.12.2010 kl. 01:34

2 identicon

Ástæður fyrir því að borga ekki Icesave:

- Aðalástæða fátæktar fátækustu ríkja heimsins er skuldafangelsi sem þessar þjóðir voru settar í , sem hefur komið í veg fyrir alla uppbyggingu, svo sem skólastarf, sjúkrahúsabyggingu og fleira. Ástandið á Haiti var til dæmis nærri jafn slæmt fyrir og eftir hamfarir, afþví að þeir skulda Frökkum svo mikinn pening að það er lítið hægt að gera við afgangspeninga annað en borga skuldir. Sama gildir um mörg Afríkuríki. Við ættum að hafa þetta í huga, þegar við sjáum næst baukinn frá Hjálparstofnun Kirkjunnar með grindhoraða sveltandi barninu á........að með því að borga Icesave er Ísland að leggja blessun sína yfir skuldaánauð þjóða sem concept. Þá munu reiknast á okkur mun hærri skuldir en Bretar og Hollendingar eru færir um að innheimta. Við erum ekki ein í heiminum og það er fylgst með okkur.....

2. Eins og þessi maður nefnir í greininni þá skapar þetta stórhættulegt fordæmi, sem gæti endað í hruni hins Vestræna heims eins og hann leggur sig. Bretar myndu brátt þurfa að súpa af eigin meðali, og með þeim síðan Bandaríkjamenn og fleiri. Efnahagskerfi heimsins gæti hrunið. Það eina sem kæmi í veg fyrir slíkt er vald þessara þjóða......en viljum við láta nýðast á okkur af þeim einum orsökum að við höfum lítið vald? Er það gott fyrir heiminn? Með sömu rökum og verið er að heimta skattfé af Íslendingum hefði verið hægt að gera það af flestum þjóðum.

3. Börnin okkar, barnabarnabörn og svo framvegis. Saklaus börn eiga ekki að gjalda fyrir afglöp 30 íslenskra bankamanna. Erfiðir tímar fara í hönd og við megum ekki við þessum aukabagga ofan á öllu þau stóru vandamál sem tilheyra framtíðinni. Þá einfaldlega munu börnin okkar ekki lifa af. Við getum þá kvatt þessa þjóð bless eftir sirka sjö kynslóðir. Það fara erfiðir tímar í hönd og börnin okkar munu þurfa að vera miklu sterkari, duglegri og betur á varðbergi en við sjálf.

Ástæður fyrir að borga Icesave

1. Blind hlýðni við "hinn sterka". "Stockholms syndrome." Geðveiki. Náði hámælum í tilvitnunum mannvitsbrekknanna sem héldu því fram á alþingi að okkur bæri "siðferðileg skylda" til að borga Icesave hið fyrra.

2. Ný-nazismi Updated Version. Að henga heilli þjóð fyrir mistök örfárra óvinsælla bankamanna. Þannig slær hjarta nazistans og þessar "röksemdafærslur" sendu gyðingana í gasklefana. Það er til geðsjúkdómur sem kallast "Stockholms syndrome". Íslendingar sem trúa því í raun og veru þeim beri að "refsa" fyrir syndir 30 bankamanna, eru líkir sjálfs-hatandi gyðingum af því tagi sem unnu innan veggja fangabúðanna við að urða lík samlanda sinna fyrir örlítið betra fæði og aðbúnað...það er að segja svipað og hinn efri-millistéttar alþingismaður býr við miðað við venjulegan íslenskan almenning. Meiri smámenni og smásálir er ekki hægt að hugsa sér. Við verðum að losna við geðveikt og órökrétt fólk af alþingi.

3. Heimsvaldastefna. Íslendingar hefðu getað hjálpað Afríkuþjóðum með að setja gott fordæmi að losna með tímanum undan sínum skuldaklafa, eins og átakið "Make Poverty History" hefur verið að berjast fyrir. Auðvitað finnst öllum það ekkert gott mál. Sumir aðhyllast enn Heimsvaldastefnu og trúa að best sé að litaði maðurinn sé enn undir hæl gömlu þrælahaldara sinna sem stálu flestum auðæfum hans. Kannski gamli Colonialisminn eigi svo sterka stuðningsmenn á Íslandi þeim finnist þeim bera "siðferðileg skylda" til að fara undir hælinn með Afríku, frekar en skapa mögulega hættu á lagalegu fordæmi, gömlu Heimsveldunum í óhag.

Beware (IP-tala skráð) 17.12.2010 kl. 02:17

3 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Þegar menn eru að ræða um "Flokksræði" finnst manni það vera dálítið útþynnt. Hvernig halda menn að hlutum sé stjórnað almennt í heiminum? Jú það er að menn með líkar væntingar og skoðanir hópa sig saman og reyna vinna málum sínum framgang. Það er aldrei í slíku samstarfi hægt að verða við vilja allra. Og menn verða að bakka til baka með margar sínar tillögur og aðrar eru útþynntar. Það er vilji meiri hluta þeirra sem mynda meirihluta sem hlýtur alltaf að ráða. Annars verður ekkert gert og ekkert samþykkt ef fólk stendur bara á sínu og gerir ekki málamiðlanir. Þetta á við Alþjóðastofnanir, Alþingi, svetastjórnir, félög, fyrirtæki og oft heimili. Þannig er lífið.

Magnús Helgi Björgvinsson, 17.12.2010 kl. 16:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristinn Karl Brynjarsson
Kristinn Karl Brynjarsson
Ég hef mínar skoðanir, ekki endilega alltaf réttar.  Málefnaleg innlegg velkomin, en þeim sem geta ekki tjáð sig öðruvísi, en með svívirðingum um síðuhöfund, aðila þess máls, sem til umræðu er, hverju sinni eða með uppnefningum, er bent á eigin bloggsíðu.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband