Leita í fréttum mbl.is

Er hugtakið "óháður álitsgjafi" gallað vörumerki?

Sama hvað Árni Páll Árnason, félagsmálaráðherra berst um við að afneita óeðlilegum afskiptum sínum af ráðningarferlinu, hjá Íbúðalánasjóði, þá tala staðreyndir málsins sínu máli og allt tal Árna um afskiptaleysi sitt, ekkert annað en lýgi.  En það þarf reyndar ekki að koma á óvart, enda virðist það vera viðbrögðin hjá ráðherrum þessarar ríkisstjórnar, að ljúga sig frekar út úr þeim vandamálum, sem að þeim steðja, frekar en að leysa þau.

 Staðreynd no. 1.  Stjórn Íbúðalánasjóðs ákvað með atkvæðum fjörgurra stjórnarmanna af fimm að ráða Astu H. Bragadóttur í starf framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs.

Staðreynd no. 2. Jóhann Ársællsson, fulltrui Samfylkingar í stjórn sjóðsins, sá er greiddi ráðningu Astu ekki atkvæði sitt, bað stjórnina um viku frest, áður en greint yrði frá ráðningu nýs framkvæmdastjóra ÍLS.  Jóhann hafði svo í kjölfarið samband við Árna Pál og greindi honum frá niðurstöðu fudnarins og í gang fór leikritið um valnefndina. 

 Allt þetta leikrít og reyndar önnur þar sem félagsmálaráðherra og flokkur hans leika stórt hlutverk í eru svo ástæða þeirrar fyrirsagnar er bloggið prýðir.   Það er þá kannski ekki seinna vænna en að skrifa eitthvað um efni fyrirsagnarinnar..........................

Það er ekki nema mánuður frá síðustu hremmingum Árna Páls, vegna ráðninga í opinber embætti.   Í öllum þeim hremmingum, þögðu "óháðu" álitsgjafarnir eins og  Dr. Sigurbjörg Sigurgeirs.   Í klúrðinu vegna Runólfs skýldi Árni sér bak við það, að lögum samkvæmt, þá hafi skuldastaða manna ekki áhrif á embættishæfi manna.  Það má vel vera að svo sé.  En Umboðsmaður skuldara, er ekki bara eitthvað embætti, heldur aðili sem að "hjóla" þarf í bankana fyrir hönd skjólstæðinga sinna.  Þá er ekki gott ef umboðsmaðurinn, á kannski fortíð, um að hafa notið óæskilegrar greiðasemi bankana.   Í tilfellum líkum þessum, hefur Dr. Sigurbjörg oftar en ekki verið fyrst á vettvang og veifað "flaggi" þröngrar lagahyggju.  Þar sem ráðherra hefði mátt vera ljós fortíð Runólf og hefði því átt að grafa betur ofan í hana, áður en hann skipaði Runólf eða ekki.   En Dr. Sigurbjörg kaus að þegja................

 En Dr. Sigurbjörg þagði ekki lengi.................. Nokkrum dögum síðar, varð stjórn Íslandsstofu það á að ganga fram hjá bróður Árna Páls við ráðningu forstjórna og ekki nóg með það, stjórnin dirfðist til þess að boða ekki, Þórólf, bróðir Árna í viðtal.......... Heldur réð stjórnin mann sem hafði verið starfandi forstjóri Íslandsstofu og kynnt sig sem slíkur.  

 Þetta allt saman þótti Dr. Sigurbjörgu, afar óviðeigandi og klassískt dæmi um "þrönga lagahyggju", þar sem stjórn Íslandsstofu, ræddi ekki við fleiri umsækjendur, en þá einstaklinga, sem hún taldi hæfa í starfið og vildi vinna með.  Í kjölfarið fóru svo blogglúðrar Samfylkingar að benda á Rotary-tengsl manna á milli og menn áttu vart orð yfir annari eins spillingu og að ráða Jón Ásbergsson í starf forstjóra Íslandsstofu..................

Vegna afskipta ráðherra af ráðningarferlinu, hefur stjórn Íbúðalánasjóðs ekki tekist að ráða nýjan framkvæmdastjóra, þó svo að nýr framkvæmdastjóri, hefði átt að hefja störf fyrir tveimur mánuðum.............  Slíkar æfingar og stjórnsýslunauðganir, virðast hins vegar ekkert raska ró, Dr. Sigurbjargar Sigurgeirsdóttur, stjónsýslufræðings............

 


mbl.is Segist ekki hafa tekið afstöðu til umsækjenda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristinn Karl Brynjarsson
Kristinn Karl Brynjarsson
Ég hef mínar skoðanir, ekki endilega alltaf réttar.  Málefnaleg innlegg velkomin, en þeim sem geta ekki tjáð sig öðruvísi, en með svívirðingum um síðuhöfund, aðila þess máls, sem til umræðu er, hverju sinni eða með uppnefningum, er bent á eigin bloggsíðu.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 1615

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband