Leita í fréttum mbl.is

Er nóg að segja "afsakið" án þess að iðrast?

Í kjölfar hrunsins varð það "krafa" samfélagsins að þeir sem "ollu" hruninu, biðji þjóðina afsökunar.  Seint um síðir bárust afsökunarbeiðnir, frá einhverjum útrásarvíkingum, eins og Jóni Ásgeiri, Björfólfi Thor og fleirum.  

Hins vegar hafa þeir "Gög og Gokke" Kaupþings (Hreiðar Már og Sigurður Einarsson) aftekið það með öllu að biðja þjóðina afsökunar á gjörðum sínum í aðdraganda hrunsins.  Þá er það bara svo. Siðferðiskennd þeirra, eða skortur á henni, býður ekki upp á þá auðmýkt, að iðrast og biðjast fyrirgefningar.

 En hvert er þá siðferðisþrek þeirra, er biðjast afsökunnar, svona til "öryggis".  "Ef að ske kynni að ég hafi valdið hér milljarðatapi sparifjáreigenda og fyrirtækja í landinu, þá segi ég afsakið"?

 Þó svo að bæði Jón Ásgeir og Björgólfur, hafi opinberlega, sagt "fyrirgefðu", þá er ekki að merkja neina iðrun í orðum þeirra og gjörðum.  Báðir hamast þeir eins og rjúpan við staur að afvegaleiða umræðuna um syndir sínar, benda á alla aðra en sjálfa sig sem mögulega "sökudólga" og hika í þeirri viðleitni sinni, ekki við að ljúga eins og örgustu sprúttsalar.

Er innistæðulaus afsökunarbeiðni, meira virði en engin?


mbl.is Vill rannsókn á vinnubrögðum sérstaks saksóknara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Sá sem hefur verið blekktur til að vinna fyrir mafíu og ekki fengið réttláta  útskýringu á þeirri blekkingu veit ekki hvað hann á að biðjast afsökunar á í nafni réttlætis!!! Hverjir gáfu leyfi til þessara viðskipta, og hvers vegna?

það er sama hvort það er Sigurður Einarsson eða einhver annar blekktur! Dóms og réttarkerfis-svik bjóða einungis stjórnlausum svikum heim!  Hvenær á t.d. Sigurjón Árnason að biðjast afsökunar? Finnst engum nauðsynlegt að hann geri það? Hvernig virkar réttlætið?

Allir eða enginn takk fyrir! þetta snýst um að framfylgja lögum og rétti en ekki að leggja fólk í einelti í boði svika-mafíu! M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 28.8.2010 kl. 21:40

2 Smámynd: Óskar Arnórsson

Var Sigurður Einarsson blekktur?  hehe..."You dont con a conman"....samkvæmt honum er ekki alveg búið að sanna að það hafi verið eitthvað bankahrun eða þannig...bara ruglaður saksóknari sem getur ekki látið mannin í friði...að öðru leyti kemur honum málið ekkert við. Hann er búin að segja það sjálfur...svo það hlýtur að vera satt. :)

Óskar Arnórsson, 28.8.2010 kl. 23:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristinn Karl Brynjarsson
Kristinn Karl Brynjarsson
Ég hef mínar skoðanir, ekki endilega alltaf réttar.  Málefnaleg innlegg velkomin, en þeim sem geta ekki tjáð sig öðruvísi, en með svívirðingum um síðuhöfund, aðila þess máls, sem til umræðu er, hverju sinni eða með uppnefningum, er bent á eigin bloggsíðu.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband