Leita í fréttum mbl.is

Afstöðuleysi til mannréttinda, smánarblettur á þjóðinni, í boði stjórnvalda.

Af einhverjum óskiljanlegum ástæðum, tók fulltrúi Íslands hjá S.Þ. þá ákvörðun að sitja hjá við afgeiðslu tillögu allsherjarþings S.Þ., þess efnis að, aðgangur á hreinu vatni, teljist til mannréttinda.

Tillagan var ekki bindandi, heldur meira til leiðbeiningar og hafði því engar skuldbindingar í för með sér. Tillagan er því öllu fremur yfirlýsing þess efnis, að aðgangur að hreinu drykkjarvatni, séu sjálfsögð mannréttindi, eins og að hafa einhvern mat að borða og sem skaðlausast andrúmsloft til að anda að sér.  Ákvörðun um hjásetu, má því alveg túlka á þann hátt, að íslenskum stjórnvöldum, sé slétt sama, hvort að fólk hafi eðlilegan aðgang að drykkjarhæfu vatni.  Eins tjáir hjásetan heimsbyggðinni það, að íslenskum stjórnvöldum, er slétt sama um það að 1,5 milljón barna deyji árlega, sökum skorts á drykkjarvatni og vatni til hreinlætis.

  Ætlar síðuritari að leyfa sér að halda því fram, að þessi ákvörðun íslenskra stjórnvalda var ekki í boði íslensku þjóðarinnar.

Síðuritari hefur rekið augun í það hér í "bloggheimum" að yfirlýstir stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar, bendi á að svokallaðar "vinaþjóðir okkar eins og Danir og Svíar, hafi einnig setið hjá.  Eigi slík rök að standast og að réttlæta afstöðu stjórnvalda, er veriið að gefa í skyn, eða hreinlega lýsa því yfir að hjáseta, íslenskra stjórnvalda, sé hluti af einhvers konar "plotti" um önnur mál.

Það er skoðun síðuritara og vonandi þjóðarinnar allrar, að afstaða eða öllu heldur afstöðuleysi, til mannréttindamála, má aldrei  og á  aldrei að vera, notað sem "skiptimynt" til kaupa á hagfeldri afstöðu í öðrum málum. 

Virðingu íslensku þjóðarinnar, gagnvart mannréttindum, er þarna gersamlega misboðið, í boði íslenskra stjórnvalda, sem að með hjásetu sinni, láta sér  léttu rúmi liggja, skort á mannréttindum 884 milljóna manna.


mbl.is Ísland sat hjá á þingi SÞ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Algjörlega sammála þér Kristinn Karl...

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 29.7.2010 kl. 12:56

2 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Af hverju tóku Íslendingar ekki sömu afstöðu og Norðmenn og Finnar, sem greiddu atkvæði með tillögunni?

Skyldi skýringin vera sú, að flest ESBríkin sátu hjá og öll utanríkisstefna landsins sé nú miðuð við að setja sig alls ekki upp á móti stórríkinu?

Axel Jóhann Axelsson, 29.7.2010 kl. 15:03

3 Smámynd: Þorsteinn Sverrisson

Vonandi fá allir útlendingar að nota vatnið okkar.  Bæði það heita og kalda. Skil ekki fólk sem er á móti því. Eins og þá sem vilja ekki að útlendingar fái nýtingarrétt að auðlindum okkar í heita vatninu á Suðurnesjum.

Þorsteinn Sverrisson, 29.7.2010 kl. 20:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristinn Karl Brynjarsson
Kristinn Karl Brynjarsson
Ég hef mínar skoðanir, ekki endilega alltaf réttar.  Málefnaleg innlegg velkomin, en þeim sem geta ekki tjáð sig öðruvísi, en með svívirðingum um síðuhöfund, aðila þess máls, sem til umræðu er, hverju sinni eða með uppnefningum, er bent á eigin bloggsíðu.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband