Leita í fréttum mbl.is

Áðurflutt leikrit, komið á ný á "fjalir" Skjaldborgarinnar.

Það hefur verið "rauður þráður" í sögu þessarar ríkisstjórnar, "Hinnar norrænu velferðar", að þegar fyrir dyrum standa óvinsælar aðgerðir hennar, eins og skattahækkanir og niðurskurður, birta nógu "svartar" spár eða áætlanir, um það hversu mikið þurfi að hækka skatta eða skera niður.

 Svo þegar loks kemur að ákvörðunnartöku, þá hafa skattar nær undantekningalaust, hækkað "minna" en "svörtustu" spár og áætlanir gerðu ráð fyrir.  Eins hefur niðurskurður oftast nær orðið minni, en upphaflega stóð til.

 Þegar aðgerðir ríkisstjórnarinnar, eru svo loks kynntar almúganum, þá birtist Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra, og tilkynnir "lýðnum" það, með "montblik" í augum, að þó svo landsmenn þurfi að taka á sig, enn og aftur ágjöf, þá megi það þakka "styrkri" efnahagsstjórn ríkisstjórnarinnar, að ágjöfin varð ekki meiri.

 Lýðnum er svo  "ætlað" að taka andköf af hrifningu og fyllast þakklæti yfir "snilld" Skjaldborgarparsins, sem leitt hefur þjóðina til enn einnar "farsællar lausnar" á þeim mikla vanda sem annars hefði blasað við, ef þjóðin nyti ekki þessar "takmarkalausu" snilldar þeirra "skötuhjúa" við stýri Þjóðarskútunnar.

Tjaldið fellur.


mbl.is Útilokar ekki skattahækkanir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Guðmundsson

Guðlega Jóhanna hefur ekki einungis séð til þess að fólk sé ekki með óþarflega háar tekjur, heldur stefnir hún nú hraðbyr að því að fólk verði ekki gáfaðra en gamlar úrsérgengnar flugfreyjur.

"Dumming down" a la Jude Apartow (Idiocracy)

Óskar Guðmundsson, 13.7.2010 kl. 13:21

2 Smámynd: kallpungur

Ég verð að segja að ef þú Herðir nógu lengi að, kafnar sjúklingurinn. Einhvern vegin áttar þetta lið sig ekki á því að það er lítið annað en ryk og köngulóarvefir eftir í buddum landsmanna. Feitu bitarnir eru löngu fluttir úr landi og hinir sem eitthvað eiga eftir flýa land eins og rottur sökkvandi skip. Þeir einu sem eftir verða eru þeir sem bundnir eru vistarbandi óseljanlegra skudumhlaðinna eigna nær tekjulausir af skattpíningu. Bráðu verður læknislaust hér á landi vegna þess að launakjörin bjóðast langtubetri annarstaðar, sama má segja um hjúkrunarmenntaða. Hvar á þessi fásinna að enda? Skatturin af engu er enginn sama hvað álagningar procentan er há.

kallpungur, 13.7.2010 kl. 13:31

3 Smámynd: Helgi Már Bjarnason

Eins og ég segi.... "vinstra pakk" á við í þessu samhengi.  Fólk sem hefur aldrei kynnst velgengi á nokkru sviði.   Vill draga fólk í meðalmennsku og fylgjandi því að allir hafi það jafn skítt og að það sé ljótt að ganga vel og hagnast.

Helgi Már Bjarnason, 13.7.2010 kl. 21:36

4 Smámynd: Dingli

Eigum við ekki að leyfa þeim að hækka skattana áður en við skömmum þau fyrir það?

Dingli, 14.7.2010 kl. 00:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristinn Karl Brynjarsson
Kristinn Karl Brynjarsson
Ég hef mínar skoðanir, ekki endilega alltaf réttar.  Málefnaleg innlegg velkomin, en þeim sem geta ekki tjáð sig öðruvísi, en með svívirðingum um síðuhöfund, aðila þess máls, sem til umræðu er, hverju sinni eða með uppnefningum, er bent á eigin bloggsíðu.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 1591

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband